um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég veit ekki hvort það á að gera tilraun til að tyggja eða stafa ofan í stjórnarliða af hverju við viljum rannsóknarnefnd á vegum þingsins. Hér er margoft búið að fara yfir það að Ríkisendurskoðun hefur ekki sömu heimildir og reynslan af því er að fyrir bankahrun þá gaf hún bankasölunum tveimur heilbrigðisvottorð sem síðar reyndist á röngum grunni, enda sögðu þau sjálf hjá Ríkisendurskoðun að ástæðan hafi verið að þau höfðu ekki sömu heimildir og rannsóknarnefndin hafði. Og hvað eigum við þá að gera í sumar þegar það kemur skýrsla frá Ríkisendurskoðun sem segir að allt sé í himnalagi? Eru stjórnarliðar þá að fara að segja: Nei, ég trúi því ekki, við ætlum að fara í rannsóknarnefnd? Það eru bara rangir aðilar sem hafa verið fengnir til að rannsaka akkúrat þetta mál.