um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Eitt sem hefur komið mér svolítið á óvart í umræðum hér um mögulega skipun rannsóknarnefndar eru athugasemdir stjórnarliða. Við heyrðum þetta frá þingmönnum Framsóknarflokksins í gær og heyrum þetta frá formanni efnahags- og viðskiptanefndar hér í dag þar sem það er einhvern veginn í raun lagst gegn því eða reynt að gera rannsóknarnefndir og slíkan farveg tortryggilegan með því að benda á hlutverk forseta Alþingis þegar kemur að skipun rannsóknarnefndar. Það er þannig í 2. gr. laga um rannsóknarnefndir Alþingis að þar er mælt fyrir um að forseti Alþingis velji formann og afmarki umboð nefndar, hvort tveggja í samráði við forsætisnefnd og nefnd þá sem fer með eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu, þ.e. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ég vil bara segja það hér að ég treysti Birgi Ármannssyni fullkomlega til þessa verks (Gripið fram í: Heyr, heyr.) og ef þetta er eitthvert vandamál í stjórnarliðinu, ef skipun rannsóknarnefndar strandar á þessu verður að segja það hreint út. (Forseti hringir.) Ég treysti Birgi Ármannssyni bara fullkomlega til þessa verks. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)