152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

barnaverndarlög.

584. mál
[18:03]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Atriðið sem ég ætlaði akkúrat að rifja upp hér í texta úr ræðum frá því í fyrra sem ég fann síðan ekki, var atriðið sem snýr að því að í frumvarpinu sjálfu, einu þessara fjögurra, ég bara mundi ekki í hverju þeirra, þetta er dálítið gagnamagn, var beinlínis sagt að ekki væri gert ráð fyrir fjármögnun tengdri frumvarpinu í fyrirliggjandi fjármálaáætlun. Það þóttu mér alveg hreint ótrúleg skilaboð. Málið hafði verið lagt fram að hausti og eflaust verið lagt fram áður en fjármálaáætlun þessa árs var lögð fram, sem var eflaust einhvers lags skýring tæknilegs eðlis. En þetta fannst mér kannski dálítið ramma inn hversu mikill losarabragur var á fjármögnunarhlutanum. Hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir sem var framsögumaður velferðarnefndar í málapakkanum öllum, ef ég man rétt, gerði miklar athugasemdir við þessa nálgun mína á sínum tíma en tókst nú ekki að sannfæra mig um að það væri nokkurs staðar að finna fulla fjármögnun á þeim verkefnum sem þarna var verið að samþykkja. Hæstv. ráðherra barnamála þá og nú svaraði því til á þeim nótum, ef ég man rétt, að það væri svo mikil arðsemi í því, þessari snemmtæku íhlutun, að það myndi borga upp verkefnið. Það er alveg örugglega rétt að það er mikil arðsemi í því að grípa snemma inn í hjá þeim börnum sem eru á vondum stað í lífinu eða í erfiðum aðstæðum. En það er bara ekki þannig sem fjármögnun opinberra verkefna og laga er greind. Við þekkjum það. (Forseti hringir.) Sjálfur hef ég ítrekað reynt að tala fyrir því þegar er reynt að auðvelda lífeyrisþegum að vinna, að þá verði horft á báðar hliðar málsins, (Forseti hringir.) en það þykir ekki réttlætanlegt á grundvelli opinberra fjármála.