152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

barnaverndarlög.

584. mál
[18:06]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Jú, það er einmitt áhugavert að samkvæmt lögum um opinber fjármál þá á að meta ávinning af stefnu stjórnvalda, sérstaklega stefnu stjórnvalda. Ef hæstv. ráðherra segir að ávinningurinn margborgi þetta upp þá þarf hann að sýna það á prenti til þess að við getum tekið tillit til þess í fjármálaáætlun til næstu ára. Hvenær fer þetta að borga sig? Það er ákveðin fjárfesting til að byrja með sem er kostnaðarsöm í skipulagsbreytingum og þess háttar. Það er meðferðarheimili í Garðabæ þar sem varla er búið að taka fyrstu skóflustunguna að og það var í framkvæmdaáætluninni sem var að klárast. Það átti að vera búið að byggja það heimili. Ekkert slíkt. Þar var settur peningur. Hvað er orðið af þeim pening? Er það þetta nýja fjármagn sem á að fara í farsældarlögin? Ég hef ekki hugmynd af því að þetta er svo ógagnsætt. Þegar ráðherra segir að þetta borgi sig bara sjálfkrafa upp út af ábatanum þá þarf að koma fram að á þessum árum geri ráðherra ráð fyrir því að ábatinn af snemmtækri íhlutun muni hafa minnkað úrræði á þriðja meðferðarstigi eða eitthvað því um líkt um helming, sem sparar þetta mikinn pening, og þar af leiðandi sé búið að koma til móts við upphaflegu fjárfestinguna. Ekkert slíkt er gert, hvergi, ekki hjá neinu ráðuneyti þrátt fyrir að lög um opinber fjármál séu mjög skýr með að það eigi að gera. En það er einhvern veginn þannig, sama hvað maður er búinn að segja hérna undanfarin fimm ár og þrátt fyrir að við séum með fjármálaráðherra sem stóð í því að búa til þessi lög um opinber fjármál, þá getur hann ekki einu sinni farið eftir þeim sjálfur. Þetta er algjört lykilatriði í því að stjórnsýslan, sem sagt ríkið, skili faglega unnum greiningum til þingsins til þess að samþykkja fjárheimildir fyrir. Hún gerir það ekki. En ráðherra getur bara sagt það. Hvaða mark eigum við að taka á því?