152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

barnaverndarlög.

584. mál
[18:37]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður fjallaði einmitt um breytta skipan ráðuneyta og ýmislegt svoleiðis sem tefur innleiðingu þessa máls. Hérna er talað um tafir á máli sem kostar fjárheimildir, fjármagn, að innleiða en samkvæmt því sem ráðherra segir sparar fé til lengri tíma. Á sama tíma er samt sagt að mat á áhrifum sé að seinkun á framkvæmd þessara ákvæða muni hvorki hafa áhrif á fjárhag ríkis né sveitarfélaga. Það getur ekki staðist. Ef þetta sparar í raun og veru fjármagn til lengri tíma þá hljótum við að vera að seinka því að fá þann sparnað. Þá hlýtur kostnaðurinn sem við erum að nota í núverandi kerfi að þurfa að vera meiri í lengri tíma alla vega. Sami kostnaður og við erum að reyna að losna við mun halda áfram í lengri tíma. Það er hérna mat á áhrifum út af seinkun, m.a. vegna breyttrar skipan ráðuneyta, sem er að hafa neikvæð áhrif á fjárhag ríkis og sveitarfélaga en samt er fullyrt af ráðherra að svo sé ekki.

Ég velti fyrir mér, hv. þingmaður, af því að við skoðuðum ágætlega kostnað við breytingar á ráðuneytunum, hvort þetta sé ekki enn einn kostnaðurinn við breytta skipan ráðuneyta sem er falinn inni í ýmsum innleiðingum á stefnu stjórnvalda sem ellegar væri að skila ábata fyrr. En öllum þeim verkefnum er verið að seinka.