152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

barnaverndarlög.

584. mál
[18:42]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Mér finnst þetta merkilegt því að svona hlutir ættu einmitt ekki að vera falinn kostnaður. Það á að leggja mat á áhrif og kostnað stjórnarfrumvarpa, hvenær ávinningur af þeim skilar sér eða hvort hann geri það ekki, sem þýðir að ef það verður seinkun á framkvæmd er alveg vitað hver kostnaðurinn er og hvernig hann hliðrast til, annaðhvort kostnaður við nýju framkvæmdirnar eða ávinninginn. Þá er mjög auðvelt að sjá hver áhrifin verða. Þannig að það ætti alla vega að vera auðvelt að sýna okkur áhrifin af því að seinka framkvæmdum á stjórnarmálum sem eiga að fara í gegnum þetta faglega ferli um mat á kostnaðaráhrifum, í forgangsröðuninni, og þess háttar. En kannski einmitt af því að það er ekki gert fáum við svona eins og í þessu frumvarpi, að þau hafa bara ekki hugmynd um það og leggja ekki í vinnuna við það að meta áhrifin, þrátt fyrir að það sé mjög augljóst að þau verði einhver miðað við orð ráðherra. Það væri einungis rétt að þetta hefði engin áhrif á fjárhag ríkis og sveitarfélaga ef kostnaðurinn við framkvæmdina á þessum lögum yrði nákvæmlega sá sami og hann er í núverandi kerfi og áhrifin og ávinningurinn yrði nákvæmlega sá sami og er í núverandi kerfi, sem sagt engin breyting. Það er eini sénsinn á því að það yrðu engin áhrif á fjárreiður ríkis og sveitarfélaga og það væri rosalega kaldhæðnislegt ef við værum að fara í allar þessar breytingar og fengjum engan ávinning fyrir.