152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

barnaverndarlög.

584. mál
[18:44]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir og vil bara hrósa honum fyrir að vera vakinn og sofinn yfir þessum málum og þegar kemur að því að reyna að greina og meta hvar einhverjar útgjaldahættur fyrir ríkissjóð liggja. Hann hefur verið mjög vakandi við þá vinnu, bæði þegar kemur að fjárlagagerðinni og öðru slíku. Þetta sem snýr að uppstokkun ráðuneyta sem ég var að nefna, ég vil bara að bíða og sjá, svo ég árétti það, t.d. hvað kemur út úr þessari stöðumatsskýrslu. Mér fannst svona pínulítið á þeim tíma þegar það var sett inn að það hafi verið gert svona vegna þess að menn fundu að þeir voru ekki alveg með fast land undir fótum þegar farið var af stað í það að reyna að greina hver rökin væru fyrir uppstokkun og tilflutningi verkefna, því að þetta virtist oft vera svolítið tilviljunarkennt, að þá gæti það verið gott útspil að setja einhvers konar stöðumat inn í það. Þetta er alveg pínu erfið umræða fyrir mann af því að ég er svo innilega hlynntur því að ríkisstjórn á hverjum tíma eigi að geta mótað Stjórnarráðið eins og henni sýnist í samræmi við einhver æðri markmið. Þessi ríkisstjórn nefndi heimsfaraldur og loftslagsmálin sem æðri markmið og allt gott og blessað með það. En það var svo margt annað sem var gert og sagt og mörg önnur uppskipting þarna að baki sem maður getur ekki séð nein rök fyrir að styðji beint við þau markmið. En ég árétta að ég er mjög spenntur að sjá hvað kemur út úr þessari stöðumatsskýrslu og hvar þá þessar kostnaðargildrur liggja. Þá verður komin reynsla. Við köllum eftir umsögnum frá aðilum um það til að mynda hvort einhver verkefni, m.a. á verksviði hæstv. ráðherra sem hér er að flytja málið, séu að detta á milli skips og bryggju eða flækjast óþarflega mikið. En það verður tíminn að leiða í ljós.