barnaverndarlög.
Forseti. Eins ágæt mál og þetta voru sem flokkarnir unnu allir saman að að velflestu leyti í þingmannanefnd þá eru ákveðin atriði þarna sem vekja áhuga minn, sérstaklega sem nefndarmanns í fjárlaganefnd. Þetta er eitthvað sem ég hef sagt margoft áður en einhverra hluta vegna hefur ekkert gerst neitt enn þá og þá finn ég mig knúinn til að minna á þetta enn einu sinni til þess að hvetja ráðherra til að gera hlutina rétt, loksins vonandi. Það sem hv. þm. Sigmar Guðmundsson var að segja um stöðumatsskýrsluna er dálítið dæmi um hvernig vinnubrögðin eru oft eftir á. Stöðumatsskýrslan sem slík er ekki nægilega skýr fyrir fram til að það sé hægt að meta eftir á hvort eða hvernig til tókst. Það er sama með ársskýrslur ráðherra. Við erum með í fjármálaáætlun og fjárlögum ákveðna mælikvarða um hvaða árangri stjórnvöld ætla að ná með stefnu sinni. Mælikvarðarnir eru einfaldlega frekar lélegir til að mæla það sem maður myndi kalla árangur. Ég hef farið yfir það margoft áður en tökum þetta mál sérstaklega þar sem er fjallað um í mati á áhrifum að seinkun á framkvæmd þessara ákvæða muni hvorki hafa áhrif á fjárhag ríkisins né sveitarfélaga. Það er aðeins satt ef kostnaðurinn við það að sinna þessum málum er sami og hann var í núverandi kerfi og ef áhrifin eru þau sömu og þau eru í núverandi kerfi þegar það er búið að breyta. Þá er þegar allt kemur til alls enginn ávinningur í raun og veru. Það verður áfram nákvæmlega sami kostnaður í öllu kerfinu, kannski hliðrast til hvar álagið lendir en heildin sem slík er nákvæmlega sú sama.
Þá er ég alltaf að pota í alla ráðherrana og segja að stöðumatsskýrslur, þessar ársskýrslur ráðherra, eru ekkert nema eftiráskýringar um það hvernig til tókst. Það er nokkurn veginn hægt að skálda upp hvernig tókst með stefnu stjórnvalda. Þau geta hrósað sér endalaust fram og til baka af því að mælikvarðarnir eru svo lélegir að það er nokkurn veginn hægt að draga upp hvaða mælikvarða sem er eftir á til að segja hversu vel gekk. Ef stöðumatsskýrsla á t.d. að koma um mitt þetta kjörtímabil og það er verið að seinka framkvæmd laganna þá er stöðumatið líka dálítið snemma í því væntanlega. Ætli stöðumatsskýrslan komi þá seinna? Það eru vissulega ýmis atriði í þessu kerfi sem ætti að vera hægt að draga upp, t.d. álag á þriðja stigs úrræði, og fyrsta og annars stigs úrræði líka, og sjá hversu margir eru að koma þar inn o.s.frv. Það er hægt að draga upp ágætisstöðumatsskýrslu þarna. En í heildina litið er þetta borið saman við lög um opinber fjármál og þá á ég sérstaklega við um 20. gr. laga um opinber fjármál, um stefnumótun stjórnvalda. Þetta frumvarp er stór hluti af stefnumótun stjórnvalda fyrir fram þrátt fyrir að það hafi ekki verið nein áhersla á þennan málaflokk svo ég muni eftir í kosningunum 2017. Þrátt fyrir það fengum við barnamálaráðherra sem datt inn í það ferli sem var verið að undirbúa þá, heppilegt, en var tvímælalaust eitthvert flagg sem var notað í síðustu kosningum. Maður verður að taka það alvarlega hversu stór hluti af stefnu stjórnvalda þetta er á þessu kjörtímabili.
Þá langar mig til að minna á hvað stendur um ábyrgð ráðherra á stefnumótun fyrir málefnasvið og málaflokka sem undir hann heyra, með leyfi forseta:
„Í fyrsta lagi er stefnumótun ætlað að tryggja að ljóst sé að hvaða markmiðum og áherslum stefnt er á hverju málefnasviði og að fyrir liggi skýr forgangsröðun,
Í öðru lagi felur stefnumótun í sér formlega greiningu og mat á stöðu þjónustu og starfsemi á einstökum málefnasviðum. Slík greining kann t.d. að leiða í ljós að endurmeta verði forsendur umfangs eða fyrirkomulags tiltekinnar þjónustu.“ — Þetta er mjög nákvæmt, mjög nauðsynlegt að þetta sé nákvæmt.
Í þriðja lagi, með leyfi forseta, „felst í stefnumótun ákvörðun um hvaða leið skuli fylgt til að ná fram settum markmiðum. Hér þarf að huga að kostnaði, áhrifum og ávinningi hverrar leiðar fyrir sig og bera saman ólíkar forsendur þeirra.“
Hérna er það skylda stjórnvalda að draga fram marga mismunandi möguleika til að ná settum markmiðum, skoða kostnað og ávinning hverrar leiðar fyrir sig og velja síðan hagkvæmustu eða skilvirkustu, ekkert endilega hagkvæmustu, eða einfaldlega áhrifaríkustu leiðina, þótt hún sé kannski dýrust. Þar er það pólitískt mat hvaða leið á að velja, þar kemur pólitík inn í. Hérna erum við búin að fá faglegar greiningar á því hvaða leiðir eru í boði og hver kostnaðaráhrif þeirra eru. Þá er það pólitísk ákvörðun ríkisstjórnar hvort velja eigi hagkvæmustu leiðina sem skilar kannski ekki góðum árangri eða leið sem er dýr en skilar mjög miklum árangri. Svo kemur ríkisstjórn og ver að það sé verið að velja eitt áhersluatriði fram yfir annað. Þetta er forgangsröðunin, forgangsröðunin milli þessara leiða. Hvort telur ríkisstjórnin vera mikilvægara, hagkvæmni eða áhrif t.d.?
Með leyfi forseta:
„Í fjórða lagi felur stefnumótun í sér að markmið eru endanlega mótuð, skilgreind og þeim forgangsraðað í samræmi við þá greiningarvinnu sem fram hefur farið. Markmið skulu vera auðsæ, hlutlæg og mælanleg. Sérstaka áherslu skal leggja á að skilgreina gæði þeirrar þjónustu sem veita á miðað við þá fjármuni sem ætlaðir eru til ráðstöfunar vegna hennar og tilgreina hvenær settum markmiðum skuli náð. Til að auðvelda mat á árangri þurfa markmiðum að fylgja skýrir árangursmælikvarðar.“
Hérna myndi maður áætla að þegar verið er að seinka innleiðingu á þessum lögum þá væri í mati á áhrifum einmitt farið yfir þetta af því að það er til greining, á að vera til greining, um hvenær á að ná ákveðnum árangri. Þarna eru mælikvarðarnir til staðar og þá ætti að vera hægt að leggja fram hverjar breytingarnar á þeim eru. Það er mat á áhrifum. Þá myndi standa hérna: 2023 verður 5% aukning á þjónustu á fyrsta stigi en ekki 3% aukning — svo ég dragi nú bara einhverjar tölur upp úr hattinum þar.
Og áfram, með leyfi forseta:
„Í fimmta lagi þarf að skilgreina þau verkefni og aðgerðir, þ.m.t. lagabreytingar, sem framkvæma þarf til að ná settum markmiðum. Mikilvægt er að gætt sé að samræmi aðgerða, að ábyrgð og hlutverk ólíkra aðila séu yfirfarin og að lagt sé almennt mat á helstu áhættuþætti og áskoranir.“
Aftur á vel við hérna: Þetta er ákveðið samstarfsverkefni ríkis og margra sveitarfélaga, hvað fjármögnun varðar hjá ríkinu t.d. inn í jöfnunarsjóð og svo þessi samvinna margra sveitarfélaga um hvert svæði fyrir sig sem nær yfir mörg sveitarfélög.
Svo að lokum:
„Í sjötta lagi þarf að leggja fram áætlun um framkvæmd einstakra þátta stefnumótunarinnar, tryggja samræmi og skýra forgangsröðun og skilgreina tímafresti og áætlaðan kostnað. Gert er ráð fyrir að fjallað sé um framkvæmd einstakra verkefna og verkþátta í stefnumótun ríkisaðila til þriggja ára sem samþykkt skal af hlutaðeigandi ráðherra.“
Hérna á að vera hægt að greina frá áhrifum á þetta nákvæmlega í svona seinkunarfrumvarpi en það er víst þannig að seinkun á framkvæmd þessara ákvæða hefur hvorki áhrif á fjárhag ríkisins né sveitarfélaga.
Ef þetta er satt, og við viljum væntanlega trúa því sem stendur í þingskjölum, þá hef ég áhyggjur af þessum lögum, eðlilega. Ef þetta er ekki satt þá hef ég áhyggjur af fjárlögum. (Gripið fram í.)Það er mjög auðvelt að hafa áhyggjur af þessu þegar framsetningin er svona. Það er eðlilegt að hafa áhyggjur af þessum málaflokki, sérstaklega miðað við hvaða árangri er lofað að þetta skili, þegar verið er að seinka.
Ég ætla að fara aðeins yfir í 21. gr., sem er mjög mikilvæg líka, tillögur um fjárheimildir. Þar stendur, með leyfi forseta: „Hver ráðherra skal skila tillögum um skiptingu fjárheimilda til málaflokka […] í frumvarpi til fjárlaga fyrir komandi fjárlagaár til ráðherra.“
Þarna skal ráðherra skila til ráðherra. Þarna er verið að tala um fagráðherra til fjármálaráðherra, það verður að hafa það skýrt.
Um 21. gr. stendur: „Með ákvæðinu er undirstrikað að hver ráðherra skili tillögum um fjárheimildir eftir málaefnasviðum og málaflokkum til ráðherra.“ Það er þá fjármálaráðherra.
Mér finnst þetta rosalega áhugaverð grein af því að ég hef heyrt það aftur og aftur á undanförnum vikum að fagráðuneytin komi til fjárlaganefndar og segi: Hérna er framkvæmd að lögum. Hérna er verkefni sem við þurfum að fara í. Það kostar þetta og þetta mikið. Og við segjum við fjármálaráðuneytið: Hérna eru tillögur okkar að fjárheimildum fyrir þennan málaflokk. Og fjármálaráðuneytið segir: Nei. Ég velti því fyrir mér hver sé með fjárveitingavaldið hérna. Það er ekki sagt í þessari grein að fjármálaráðherra geti sagt nei, bara að fagráðherrar skuli skila tillögum sínum til fjármálaráðherra sem gæti að ákveðnu samræmi og slíku. En í þessum fjárheimildatillögum fagráðherranna verða til, þegar upp er safnað, þeir rammar sem við vinnum síðan eftir og rökræðum hérna á þingi hvort sé góð forgangsröðun fjárheimilda og ýmislegt svoleiðis. En fjármálaráðherra segir nei.
Ég velt því fyrir mér, af því að við erum ekki með þetta svokallaða fjölskipaða stjórnvald, af hverju fjármálaráðherra fær að ráða fjárheimildum fagráðherra þegar fagráðherra ber ábyrgð á því að framkvæma lög sem eru á verksviði hans, ábyrgðarsviði hans? Það er mat fagráðherra að t.d. framkvæmd farsældarlaganna kosti 2 milljarða og þá er það tillagan sem hann skilar til fjármálaráðherra. Hvaða forsendur hefur fjármálaráðherra til að segja nei? Ég átta mig ekki á því. Ég skil það ekki, sérstaklega af því að það er hæstv. mennta- og barnamálaráðherra sem ber ábyrgð á þessum lögum en ekki fjármálaráðherra. Ef fjármálaráðherra myndi segja nei í því tilviki, hver bæri þá ábyrgð gagnvart þeim sem þurfa að þiggja þessa þjónustu eða bara sinna þessari þjónustu yfirleitt? Það er ekki fjármálaráðherra sem er með fjárveitingavaldið, það er Alþingi. Ég verð ítrekað var við það að fjárlaganefnd og Alþingi fær ekki einu sinni þessa sundurliðun frá fagráðherrum. Við höfum ekki hugmynd um það hvort það sé í rauninni búið að stilla til framkvæmd á ýmsum lagabálkum þannig að þeir séu í raun og veru vanfjármagnaðir að mati fagráðherra vegna þess að fjármálaráðherra sagði: Nei, þú færð minni pening en þú heldur eða telur að þú þurfir til að uppfylla þína ábyrgð og þínar skyldur sem fagráðherra. Hvar erum við þá í stjórnsýslunni, stjórnkerfinu okkar, um að vera ekki fjölskipað stjórnvald?