152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

barnaverndarlög.

584. mál
[19:08]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg rétt að þetta eru smápeningar til að byrja með og stóru peningarnir koma 10–20 árum seinna, alveg tvímælalaust. En þar erum við líka með skýrslu um langtímahorfur í efnahagsmálum, í hagkerfinu, sem er skýrsla sem á að vinna upp og endurskoða á þriggja ára fresti. Þar væri þá bara tækifæri fyrir hæstv. ráðherra til að sýna aðeins á spilin í hagkvæmninni til fleiri ára í barnamálum fyrir næstu skýrslu, sem ætti að koma út á næsta ári miðað við þrjú ár þó að fyrsta skýrslan hafi komið út í fyrra, hún tafðist ansi lengi, sjáum til hvernig því vindur fram. En það er þá einmitt tækifæri til að leggja upp þennan málaflokk til næstu t.d. 30 ára með tilliti til lýðfræðilegra breytinga o.s.frv., hver staðan er eins og hún er núna og hvaða áhrif það hefur lýðfræðilega til lengri tíma að færri börn séu að detta alveg niður í þriðja stigs úrræði. Ég fór í heimsókn í Vopnabúrið fyrir nokkrum vikum síðan og t.d. bara það úrræði, sem er í rauninni verktakagreiðsla sem maður reiknar upp, það þyrfti gróflega áætlað 150 svoleiðis manns á landsvísu sem myndu dekka þörfina. Sá kostnaður er (Gripið fram í.) 1,2 milljarðar sem er í raun sama og er við þetta. Það þarf ekki mikið meira en það í raun og veru og allur sá kostnaður er þegar til í kerfinu. Lausnin er alveg til staðar, alla vega hluti af henni, (Forseti hringir.) og ég held að viljinn sé til staðar líka.