barnaverndarlög.
Virðulegur forseti. Ég vil nota tímann í seinni ræðu minni til að ítreka það að ég tel að breytingar sem áttu sér stað í fyrra, sem voru að koma á fót barnaverndarþjónustu og umdæmisráðum barnaverndar í stað barnaverndarnefndanna, hafi einfaldlega verið of flóknar, að taka upp þetta tvöfalda kerfi, þessa barnaverndarþjónustu sem miðast við 6.000 íbúa og síðan umdæmisráð barnaverndar. Ég tel að ástæðan fyrir frestun framkvæmdarinnar á þeim lögum sem hér er farið fram á í þessu frumvarpi gefi til kynna og sé vísbending um að það sé rétt.
Í greinargerð með þessu frumvarpi um frestun framkvæmdar á þessu nýja kerfi kemur fram að menn héldu að tæplega ár myndi duga til að innleiða þetta kerfi en raunin hefur verið önnur. Þetta eru mjög umfangsmiklar breytingar og flóknar og tímafrekar, eins og kemur fram í greinargerðinni. Ég tel að fámennið, sérstaklega á landsbyggðinni, sé einfaldlega það mikið að það beri ekki tvöfalt kerfi. Það sé miklu einfaldara að endurskoða þetta þannig að barnaverndarnefndirnar verði sameinaðar, jafnvel á grundvelli kjördæmanna, að Norðvesturkjördæmi, mitt kjördæmi, verði bara með eina barnaverndarnefnd skipuð fagfólki, jafnvel í föstu starfi að hluta, sem geti þá kallað til sín sérfræðinga í einstökum málum ef þörf er á. Síðan verði úrskurðarnefnd í barnaverndarmálum á landsvísu. Þá væri hægt að kæra ákvarðanir þessarar stóru barnaverndarnefndar til úrskurðarnefndar sem er á landsvísu og þaðan til dómstóla. Í dag er kerfið þannig að það eru mál fyrir barnaverndarnefnd sem fara þaðan til dómstóla. Ég hef sjálfur verið fulltrúi í barnaverndarnefnd, fékk það ábyrgðarmikla hlutverk árið 2008, og eins og ég lýsti í fyrri ræðu minni þurfti ég að lesa í gegnum stóran bunka af málum yfir langa helgi og taka svo ákvarðanir sem nefndarmaður á þriðjudegi eftir að lesið gögnin, þennan gríðarlega mikla bunka. Það var einfaldlega allt of mikið og þó er ég menntaður lögfræðingur og ég get rétt ímyndað mér hvernig það er fyrir hina pólitískt skipuðu — ég var náttúrlega pólitískt skipaður þannig lagað — sem eru ekki vanir þessum störfum, sérstaklega í fámenninu.
Ég ítreka það að þessar breytingar náðu ekki nógu langt. Ég vonast til að hæstv. ráðherra og þessi nýja nefnd sem hann ætlar skipa aftur skoði þetta með það í huga að einfalda kerfið enn frekar og auka faglega þekkingu, sérstaklega með tilliti til dreifbýlisins og nálægðarinnar. Einföldunin ætti bara að vera stækka barnaverndarnefndir enn þá meira, hafa fagfólki í þeim og að það væri hægt að kæra til æðra stjórnvalds en ekki til dómstóla. Það er miklu þyngri málsmeðferð hjá dómstólunum. Öll málsmeðferð dómstóla er í fastari skorðum á meðan nefndirnar geta haft eingöngu fagfólk. Eins og ég hef sagt áður getum við horft til yfirskattanefndar og þess að það er einfaldlega meira réttaröryggi í skattamálum heldur en í barnaverndarmálum og það er algerlega óásættanlegt.
Ég verð fulltrúi míns flokks í nefnd sem hæstv. ráðherra hefur skipað og ég hlakka til að taka þátt í því starfi. Ég tel að barnaverndarlöggjöfin sé ein mikilvægasta löggjöf sem Alþingi kemur að. Við erum nú í upphafi kjörtímabils og ég efast ekki um að við getum verið með mjög fullkomin og góð barnaverndarlög og haft þau í forgangi á næstu misserum. Ég hefði jafnvel óskað þess að fresturinn væri lengri en bara til áramóta.