barnaverndarlög.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta langt, vil bara þakka hv. þingmanni fyrir og hlakka til samstarfs við hann og alla aðra þingmenn vegna þess að ég held að þessi mál séu þannig að við eigum að geta unnið þau þvert á flokka. Ef við ætlum að ná í gegn stórum breytingum eins og þessum þá þurfum við að hugsa það þannig vegna þess að stórar breytingar verða ekki nema á einu, tveimur, þremur kjörtímabilum, mjög stórar, svo að ég hlakka til samstarfs við hv. þingmann.
Varðandi þessi barnaverndarmál þá stöndum við við það sem við erum að setja fram. Þetta var unnið í mikilli sátt á síðasta kjörtímabili. Ég get alveg tekið undir með hv. þingmanni, og sagði það hér í ræðu fyrr í dag, að persónulega hefði ég talið að þetta 6.000 lágmark hefði átt að vera hærra. Það var hins vegar eitthvað sem var unnið í samkomulagi. Við erum að stíga skref í ákveðna átt en menn geta haft á því misjafnar skoðanir. En ég held að það hafi verið mikilvægt og að þessi mál hefðu í heild sinni ekki farið í gegn nema af því að við vorum búin að ná tiltölulega góðu samkomulagi um þau. Það er nú einu sinni þannig þegar við erum með ríki, sveitarfélög, fulltrúa allra stjórnmálaflokka og allra ráðuneyta að þá fá aldrei allir allt og við það varð ráðherrann að una. Engu að síður eru skrefin stór og mikilvæg og ég hlakka til samstarfs við hv. þingmann í þessum málum.