152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

barnaverndarlög.

584. mál
[19:26]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Ég þakka hæstv. ráðherra hlý og góð orð í þessu máli. Ég er mjög ánægður með að hæstv. ráðherra hafi gert þetta að sínu helsta stefnumáli. Hann gat sér ansi góðan orðstír á síðasta kjörtímabili í vinnu við barnaverndarmál og ég efast ekki um að metnaðurinn verði enn meiri á næsta kjörtímabili. Ég held að nálgunin í þessu máli þurfi að vera hagsmunir barnsins, hagsmunir barnsins. Ég veit það eru flóknir hagsmunir á bak við þetta, pólitískir og sveitarstjórnarstigið og annað slíkt, en við verðum að geta unnið þetta algerlega í sameiningu og það á að vera klárt mál að við getum unnið þetta þvert á alla flokka án nokkurra pólitískra deilna um stefnumál og annað slíkt. Stefnan á bara að vera ein og það er að hafa hagsmuni barna í fyrirrúmi. Það einfaldar alla málsmeðferð í þessum málaflokki. Ég held að veikleikar okkar séu dreifbýlið, fámennið og ef við getum yfirunnið það og snúið því upp styrkleika í þessum málaflokki þá erum við í góðum málum í barnaverndarmálum á Íslandi.