um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Þá er loksins komið minnisblað frá Bankasýslu ríkisins eftir margra vikna bið, minnisblað sem fjárlaganefnd fundar um í fyrramálið. Þingmenn fá þar af leiðandi nokkra klukkutíma til að kynna sér það. Í dag kom minnisblað frá fjármálaráðuneytinu sem er athyglisvert fyrir margra hluta sakir en þar kemur m.a. fram að að því er varðar hæfisreglur stjórnsýsluréttar hafi engar aðstæður verið fyrir hendi sem voru til þess fallnar að valda vanhæfi ráðherra þegar hann tók ákvörðun um það hvort skyldi samþykkja tilboð eða hafna þeim, þrátt fyrir að faðir hans hafi verið á meðal kaupenda. Þetta er auðvitað allt með nokkrum ólíkindum og það verður fróðlegt að halda áfram umræðu um þetta á næstu dögum.