um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég ætlaði að taka til máls um fundarstjórn tengt næsta máli þar sem ég er einmitt fyrsti maður á mælendaskrá. Það var búið að ræða um það hér fyrr í dag að ráðherra kæmi og héldi framsögu þar sem ráðherra var ekki til staðar þegar þetta frumvarp var lagt fram og staðgengill hans gat ekki alveg svarað okkur þeim spurningum sem við höfðum. En nú virðist sem ég sé sjálfur næstur á mælendaskrá og þykir mér miður að ráðherra hafi ekki geta staðið við það sem forseti sagði, að hann yrði hér.