152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[19:31]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Kemur hæstv. ráðherra sem einmitt var óskað eftir að yrði hér í umræðunni um fiskeldi og tek ég honum fagnandi. Það var um það rætt á fundi þingflokksformanna með hæstv. forseta að hæstv. ráðherra myndi jafnvel leggja orð í belg í þessari umræðu af því að hann var ekki hér síðast þegar þetta mál var á dagskránni og þætti þingheimi vænt um að fá að heyra afstöðu hans og jafnvel svör hans við einstaka spurningum sem bornar voru upp sem staðgengill hans gat ekki svarað þegar málið var í 1. umr.