152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

457. mál
[19:47]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er verið að benda stjórnvöldum og hæstv. ráðherra á mikilvægi þess að fram fari fullnægjandi umhverfismat. Þeir sem gerst þekkja í þessum málaflokki hafa bent á það að með þessu frumvarpi sé verið að festa í sessi ákveðna óráðsíu og ákveðinn slaka varðandi umhverfismat þegar verið er að veita leyfi til fiskeldis. Um það snýst vandinn. Það er verið að setja í lög vinnubrögð sem eru óboðleg varðandi veitingu leyfis, starfsleyfis, í trássi við umhverfismat. Það er vandamálið. Þú bætir ekki ólög með því að festa þau í sessi, með því að setja sóðaskapinn inn í lagaákvæðið. (Forseti hringir.) Það er ekki þannig sem við gerum þetta. Við þurfum að vanda okkur.