152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

457. mál
[20:48]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég held að hann sé eitthvað örlítið að misskilja. Hér er ég að fjalla um að ráðherra sé að leggja fram frumvarp um að leyfa veitingu bráðabirgðaleyfis þrátt fyrir að leyfi hafi verið fellt úr gildi vegna ófullnægjandi umhverfismats. Ég kannast ekki við að ég hafi sagt að ráðherra sjálfur veiti leyfið. Það var hins vegar þáverandi hæstv. sjávarútvegsráðherra, Kristján Þór Júlíusson, sem gekk rösklega til verks og lagði einmitt fram frumvarp til breytinga á lögum um fiskeldi sem fól í sér sérstaka heimild ráðherra. Í þessu tilfelli er ég að gagnrýna að festa eigi í sessi heimild til þess að veita þetta bráðabirgðaleyfi eftir að leyfi hefur verið fellt úr gildi vegna ófullnægjandi umhverfismats. Mig grunar að hæstv. ráðherra sé eitthvað að reyna að snúa út úr eins og stjórnarliðum er gjarnt þessa dagana.