152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

loftslagsmál.

471. mál
[21:01]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál. Með frumvarpi þessu er verið að laga orðaröðun í einu ákvæði laganna, styrkja reglugerðarheimild sem tengist losunarreglum í tengslum við flug auk þess sem lagt er til að innleidd verði ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB.

Með lögum nr. 98/2020 voru gerðar margþættar breytingar á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012 og m.a. bætt við III. kafla sem fjallar um skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum til 2030 en hér er lögð til breyting á orðaröðun í 6. gr. b sem fjallar um skuldbindingar vegna landnotkunar, breyttrar landnotkunar og skógræktar. Eins og ákvæðið er orðað í dag er eins og verið sé að ræða um upptöku gróðurhúslofttegunda sem er ekki rétt. Ákvæðið fjallar um losun gróðurhúsalofttegunda og síðan um upptöku sem fellur undir flokk landnotkunar en með upptöku er átt við bindingu kolefnis úr andrúmslofti með tilteknum aðgerðum. Því er lagt til að orðið „losun“ standi fyrir framan orðið „gróðurhúsalofttegunda“ og ákvæðið verði svohljóðandi: „Losun gróðurhúsalofttegunda og upptaka sem fellur undir flokk landnotkunar, breyttrar landnotkunar og skógræktar…“.

Lögð er til breyting á reglugerðarheimild í 27. gr. a sem er í VII. kafla A og fjallar um vöktun og skýrslugjöf samkvæmt CORSIA-kerfi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar en kerfið heldur utan um losun gróðurhúsalofttegunda í alþjóðaflugi og er því yfirgripsmeira en núverandi ETS-kerfi sem nær eingöngu til flugs innan EES. Samkvæmt CORSIA er tilteknum flugrekendum skylt að jafna losun sína sem er umfram losun samkvæmt losunargögnum undangengins árs en hins vegar vantar í 27. gr. a heimild sem kveður á um tilkynningarskyldu stjórnvalda til flugrekenda um jöfnunarskyldu þeirra. Því er lögð til sú breyting að ráðherra geti mælt fyrir um í reglugerð um jöfnunarskyldu flugrekenda.

Að lokum er lagt að ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1416 verði innleidd og henni bætt við 47. gr. laganna auk þess sem bæta þarf við staflið í II. viðauka laganna. Ákvörðunin tengist viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Með henni er flug frá flugvöllum í Bretlandi til flugvalla innan EES-svæðisins undanskilið frá viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Lagt er til að nýr töluliður bætist við 47. gr. laganna svohljóðandi: „Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1416 frá 17. júní 2021 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/87/EB að því er varðar að útiloka flug sem kemur frá Bretlandi frá viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir.“

Jafnframt þarf að bæta við nýjum staflið við II. viðauka við lögin sem fjallar um losun frá flugstarfsemi, svohljóðandi; „flugferðir frá flugvöllum í Bretlandi til flugvalla á Evrópska efnahagssvæðinu“. Í viðaukanum eru talin upp þau flug sem eru undanskilin viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Íslenskir flugrekendur munu hér eftir sem hingað til þurfa að tilkynna og standa skil á losun sinni á flugi frá EES-svæðinu til Bretlands í hefðbundinni ETS-skýrslu, en losun á flugi frá Bretlandi til EES fellur undir breska ETS-kerfið.

Ekki er gert ráð fyrir fjárhagsáhrifum hjá ríkissjóði vegna frumvarpsins.

Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið meginefni þessa frumvarps og legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.