loftslagsmál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Stutta svarið er að það á engin breyting að verða við það, fyrir utan svona praktíska hluti, getum við sagt, sem snúa að rekstrinum og öðru slíku. Það sem við erum að gera núna mun auðvitað taka ákveðinn tíma en er stóra einstaka málið: Við erum að nálgast þessi loftslagsmál þannig að við verðum að vera með samstarf við alla þá aðila, og þeir eru ekki fáir, sem koma að þessum málum. Það skiptir engu máli hvort viðkomandi stofnanir heyra undir ráðuneytið eða ekki, ég tala nú ekki um atvinnulífið sem náttúrlega heyrir ekkert undir ráðuneytið, eða hvort aðrir þeir aðilar sem að málinu koma — ég ætla ekki að segja allir en nokkurn veginn allir — heyri undir ráðuneytið eða ekki. Það er líka mjög mikilvægt, sérstaklega þegar kemur að lagasetningu, ég tala nú ekki um að gæta hagsmuna okkar á alþjóðavettvangi, því að við þurfum að gera það þarna, að allar ábendingar sem nauðsynlegt er að koma áleiðis, til að gæta okkar hagsmuna og sjá til þess að við gerum þetta eins vel og mögulegt er, komist alla leið. Ég hef ekki heyrt af því að nein vandkvæði séu á því að hafa samskipti við ráðuneytið eða starfsmenn þess. Það liggur alveg fyrir þegar við ræðum loftslagsmálin að hv. þingmaður og allir aðrir geta bent á fjölmargar stofnanir sem koma beint að þeim málum og fjölmarga aðra aðila sem heyra ekki beint undir ráðuneytið og munu aldrei heyra beint undir það.