152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

loftslagsmál.

471. mál
[21:09]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég er að benda á þessa umsögn vegna þess að hún sýnir svart á hvítu að það er eitthvað ekki í lagi með samskiptin og beini ég því til ráðuneytisins að athuga hverju sætir vegna þess að Skógræktin velur að koma til þingsins í alls óskyldu þingmannamáli, eftir að hafa ekki fengið lausn sinna mála í samtali við ráðuneytið. Þetta er ekki bara einhver stofnun úti í bæ heldur lykilaðili í bindingu kolefnis til framtíðar, Skógræktin. En varðandi framtíðarsýn þá langar mig að spyrja ráðherrann hvers vegna tækifærið sé ekki nýtt þegar mælt er fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um loftslagsmál að binda í lög einhverjar beittari, nýjar aðgerðir í loftslagsmálum. Þær eru nefnilega ekki í þessu frumvarpi og þær eru ekki á þingmálaskrá ráðherrans fyrir yfirstandandi löggjafarþing. Ég hefði t.d. viljað sjá lögfestingu á markmiði ríkisstjórnarinnar um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030. Það er ekki bara ég sem hefði viljað það heldur allir sérfræðingar sem tjá sig um málið. Þá er aftur hægt að benda á frumvarpið sem ég lagði fram sem ég nefndi áðan, þar sem umsagnir eru allar á einn veg, fólki þykir, sérfræðingum, varðan til ársins 2030 einfaldlega vera nauðsynleg til þess að varða leiðina að kolefnishlutleysi árið 2040 sem ríkisstjórnin hefur sett sér. Mig langar bara að heyra í ráðherranum hvenær við megum eiga von á, fyrst að við náum því ekki með þessu frumvarpi, alvöru metnaðarfullum frumvörpum frá ríkisstjórninni varðandi aðgerðir í loftslagsmálum?