152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

loftslagsmál.

471. mál
[21:11]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég veit ekki af hverju hv. þingmaður kemst að þeirri niðurstöðu að ég sé að tala niður Skógræktina, sem ég er alls ekki að gera, þegar ég segi að það breytist ekkert þó að hún heyri ekki beint undir ráðuneytið. Hún gegnir auðvitað mjög mikilvægu hlutverki og einnig fleiri stofnanir. Það hvarflar ekki að mér, ég er síðasti maðurinn til þess, að tala niður skógrækt í landinu. Ég þekki þau mál einstaklega vel og hef gert í áratugi af eigin raun. Það sem hv. þingmaður vísar til með ný frumvörp varðandi loftslagsmálin þá er ég með tvö frumvörp sem tengjast loftslagsmálum beint sem ég fæ vonandi að tala fyrir á eftir. En til að setja metnaðarfyllri markmið — þau eru mjög metnaðarfull núna — þá þurfum við að byrja á því, að mínu áliti, að byggja það á því að við getum staðið við þau. Við verðum ekki dæmd af því sem við tölum um heldur því sem við framkvæmum. Það liggur alveg fyrir að verkefnið er mjög stórt fram undan þegar kemur að loftslagsmálum. Það er bara mjög stórt og okkur liggur á. Það er verkefni okkar að sjá til þess að við förum í aðgerðir til að ná þeim metnaðarfullu markmiðum sem við erum búin að setja okkur því að það gerist ekki af sjálfu sér, svo mikið er víst.