152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

loftslagsmál.

471. mál
[21:22]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið og já, þróunin er mikil. Eins og ég hef nefnt áður, bæði hér í ræðustól og við hæstv. ráðherra, er Ísland kjörið land til að vera að þróa tækni sem tengist loftslagsmálum. Það er nefnilega eitt sem gleymist stundum og það er að það er eitt að vera með flugvélar sem geta flogið á rafmagni eða rafeldsneyti en það er annað hvernig þú býrð til þetta rafeldsneyti eða setur rafmagn á sjálfar rafhlöðurnar. Þar höfum við græna orku sem er ákveðin sérstaða vegna þess að það gleymist oft í öllu þessu að ef þú ert á rafbíl ertu kannski að hlaða hann með rafmagni sem framleitt er (Gripið fram í: Nákvæmlega.) með kolum. Við þurfum að hugsa um það. En ég hvet aftur hæstv. ráðherra til að fara í samstarf við kollega sína um það að gera Ísland að miðstöð þekkingar og nýsköpunar á sviði loftslagsmála.