152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

loftslagsmál.

471. mál
[21:23]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Þau eru mjög metnaðarfull, sagði hæstv. ráðherra hér áðan um markmið ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, þau eru mjög metnaðarfull. Nú þarf bara að fara í aðgerðir. Þetta er svarið sem við fáum alltaf þegar við erum að þýfga ríkisstjórnina um bindandi skuldbindingar í loftslagsmálum. Það eru alltaf svo metnaðarfull markmið að það þarf ekki að lögfesta þau. Það eru alltaf svo metnaðarfull markmið að það þarf ekki að sýna einhverja framtíðarstefnu í fimm ára fjármálaáætlun af því að það kemur alveg rosalega fínt plan einhvern tíma seinna. Þess vegna hefði ég svo gjarnan viljað, frú forseti, sjá í þessu frumvarpi lagt til þó ekki væri nema bara að lögfesta eigið markmið ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur um 55% samdrátt í losun fyrir árið 2030, þó svo að það sé of lítið. Það er í takt við sameiginlegt markmið Evrópusambandsins og EES-ríkjanna um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda sem var dæmt ófullnægjandi á loftslagsráðstefnunni í Glasgow af öllum viðstöddum. Það var ekkert ríki sem skilaði almennilegum plönum þar. Við verðum dæmd af aðgerðum en aðgerðirnar byggja á markmiðunum sem við setjum og við setjum markmið í lögum. Það er einn af stöðunum þar sem við setjum markmið. Þess vegna hefur mér alltaf þótt erfitt að fylgjast með þessum bægslagangi ríkisstjórnarinnar gegn því að setja markmið fyrir árið 2030 á sama tíma og hún ber sér á brjóst fyrir að hafa sett sér markmið fyrir árið 2040. Það voru önnur skilaboð sem ríkisstjórnirnar voru sendar heim með frá Glasgow: metnaðarfullu markmiðin fyrir árið 2040 duga ekkert. Þau líta miklu betur út, þau reiknast upp í meiri samdrátt í losun en til að ná þeim þá þarf fyrst að ná einhverju árið 2030. Það þarf að ná einhverju árið 2025 og það þarf að ná einhverju árið 2023. Við komumst alla leiðina til 2040 með því að setja okkur markmið á leiðinni. Þess vegna er ekki nóg að koma með lítil frumvörp sem ná utan um afmarkaða hluta, eins og við ræðum hér síðar í kvöld, frumvarp hæstv. ráðherra um auknar niðurgreiðslur á varmadælum og hitt frumvarpið, sem er nú tæpast hægt að kalla loftslagsfrumvarp, sem snýst um aukna möguleika fólks til að framleiða raforku og græða á því pening. Í þessu frumvarpi um loftslagsmál hefðum við hins vegar átt að sjá einhver alvörumarkmið, einhverja stóra mynd. Ef ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefði mjög metnaðarfull markmið væri hún ekkert að pukrast með þau heldur væru þau hér svart á hvítu til að verða samþykkt sem lög frá Alþingi.

Ég held, frú forseti, að ástæðan fyrir því að það má ekki að lögfesta þessi markmið sé sú að það er verið að bíða. Það er verið að bíða eftir því hvað kemur út úr stóra samráðinu innan Evrópusambandsins til að hægt sé að sjá hversu ódýrt sé hægt að sleppa frá því að lögfesta markmið hér. En það er dálítið mikið metnaðarleysi vegna þess að þó svo að Evrópusambandið sé stærsti einstaki aðilinn á alþjóðasviðinu sem er að gera þó ágætishluti í loftslagsmálum þá er það ekki að gera nóg. Þegar það tekur tvö skref áfram þá á það líka til að taka skref aftur á bak. Þannig skulum við ekki gleyma því að sameiginlegt markmið Evrópusambandsins um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030 var prúttað niður af framkvæmdastjórninni, af ráðherraráðinu, úr 60% sem Evrópuþingið lagði til. Þessi 60% voru ekki einu sinni nógu metnaðarfull. Það sem sérfræðingar, umhverfisverndarsamtök og grænt stjórnmálafólk í Evrópu var að berjast fyrir árið 2019, 2020, var 65%. Það sem ætti yfir Evrópu að vera sameiginlegt markmið um 65% samdrátt í losun fyrir árið 2030 var prúttað niður í 55% á Evrópuvísu og ríkisstjórnin er að bíða eftir því að sjá hversu lítinn hlut hún þarf að taka af því. Þangað til það gerist má ekki festa neitt í lög sem gæti gengið lengra. Þessu ætti auðvitað að vera þveröfugt farið. Á Íslandi ættu markmiðin að vera eins metnaðarfull og Ísland getur náð. En það er ekki vilji fyrir því að Ísland leiði vagninn í þessum málum. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur situr á vagninum og lætur aðra teyma.

Evrópusambandið er þessa dagana að endurskoða ETS-kerfið, viðskiptakerfið um losunarheimildir. Hluti af þessu frumvarpi snýst um ETS-kerfið. Það er kannski ágætt að nefna hér í sal hvaða hagsmunaöfl eru að takast á þar vegna þess að þau eru kunnugleg og vegna þess að þegar kemur að losunarheimildum þá á Ísland ekkert allt of fallega sögu. Á Kyoto-ráðstefnunni mætti Ísland og var í liði með þeim sem voru að tala niður aðgerðir í loftslagsmálum. Ísland mætti þangað og sagði: Hér eigum við orku sem við erum tilbúin að selja á undirverði og við erum til í að þvæla ekki of ströngum umhverfisskilyrðum inn í þetta eða eins og það hét í kynningarbæklingi sem var prentaður á ensku, með leyfi forseta, Lowest Energy Prices og talað þar um „minimum environmental red tape“. Þessi bæklingur var sendur út um allar koppagrundir til að laða til landsins fyrirtæki sem gætu nýtt sér ódýru raforkuna úr Kárahnjúkavirkjun. Í Kyoto var samið um að sú aukning sem yrði á losun Íslands vegna þessa stóriðjubrjálæðis myndi ekki telja, hún væri tekin út fyrir sviga þegar kæmi að því að bera okkur saman við aðrar þjóðir. Sem betur fer hefur Ísland horfið af þessari braut enda kannski ekki í boði lengur að sækjast eftir því að vera ekki bara tossinn eða trassinn heldur beinlínis andumhverfissinninn á sviðinu.

ETS-kerfið er litað af þeirri stemningu sem ríkti í kringum aldamótin þar sem Evrópa hafði miklar áhyggjur af því að ákveðinn iðnaður myndi gufa upp ef honum yrði settur stóllinn fyrir dyrnar hvað varðar mengun og losun gróðurhúsalofttegunda. Þar með var ákveðið, í nánu samráði við hagsmunaöflin, að búa til svokallaða kolefnislekalista. Þá voru borin kennsl á iðnaðarfyrirtæki sem talin var hætta á að myndu hverfa til annarra landa með sína framleiðslu frekar en að axla þá sameiginlegu ábyrgð Evrópubúa að draga úr losun. Íslensku álverin eru á þessum kolefnislekalistum og fengu vegna þess mjög mikið af ókeypis losunarheimildum í ETS-kerfinu og hafa þess vegna ekki þurft að taka á honum stóra sínum fyrr en ETS-kerfið fór aðeins að bíta í þau fyrir svona tveimur árum. Það trappast niður heimildirnar sem þessi fyrirtæki fá úthlutað ókeypis hægt og bítandi. Slagurinn úti í Brussel núna er að hraða því hversu hratt ókeypis losunarheimildir trappast niður vegna þess að öldin er allt önnur. Alveg eins og allur almenningur og allt stjórnmálafólk á að vera búið að átta sig á því og er flest búið að átta sig á því að þessi fyrirtæki eiga að vera undir sömu sök seld og eiga alveg að geta axlað sameiginlega ábyrgð okkar allra á því að ná markmiðum okkar um að hér sé lífvænlegt á jörðinni til framtíðar. Jafnvel mætti segja að fyrirtækin sem bera ábyrgð á stærstum hluta losunar bæru aukna ábyrgð umfram t.d. sauðsvartan almúgann þar sem hver einstaklingur fyrir sig ber ábyrgð á mjög lítilli losun samanborið við stóran staðbundinn mengandi iðnað. En ef þetta næst ekki, segjum sem svo að samningar innan Evrópusambandsins um harðara ETS-kerfi skili ekki árangri, og reyndar hvort sem gerist, þá þurfum við samt að fara að vinna betur með ETS-kerfið og gera það t.d. gagnsærra hvaða tekjur ríkið hefur af þessu uppboði á losunarheimildum. Það er nefnilega ekki fyrr en á síðustu árum sem verðið á hverju tonni af koltvísýringi innan ETS-kerfisins fór að ná einhverju máli en það verð á eftir að hækka hröðum skrefum á næstu árum og uppboð losunarheimilda er að verða stór tekjustofn fyrir ríki Evrópu. Miðað við skýrslu Evrópusambandsins sem Stundin skrifaði frétt upp úr þá hafa tekjur íslenska ríkisins á árunum 2019, 2020 og 2021 verið eitthvað í kringum 10 milljarða kr., af hlutdeild ríkisins í uppboði á losunarheimildum. 10 milljarðar á þessu þriggja ára tímabili fara langt með að vera þriðjungur af framlögum ríkisins til loftslagsmála. Þannig að ríkisstjórnin sem montar sig af því að vera með mjög metnaðarfull markmið í loftslagsmálum þarf kannski að fara að láta það fylgja sögunni að þau hafi mörg verið svo ódýr að það hafi verið borgað með þeim. Frá Brussel bárust milljarðar til að niðurgreiða aðgerðirnar eins og á að gera. En það á að gera það með gagnsæjum hætti þannig að tekjurnar séu nýttar beint í loftslagsaðgerðir (Forseti hringir.) þannig að almenningur og fyrirtæki sjái ávöxt erfiðis síns af þessum mörkuðu tekjum, sem er víst orðið skammaryrði í frjálshyggjuhandbókinni en er akkúrat það sem þarf til að fólk upplifi réttlæti í þessum málum.