loftslagsmál.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni ræðuna. Eins og þekkt er erum við félagarnir nú ekki alltaf sammála um öll atriði er snúa að loftslagsmálum og ýmsu öðru en það er engu að síður þannig að hv. þm. Andrés Ingi Jónsson er býsna vel lesinn í þessum málum, þó að pólitíska nálgunin sé mögulega ólík minni. En það sem ég hef haft miklar áhyggjur af í þessu ETS-kerfi öllu og svo sem fleirum, við þekkjum nú að flækjustigið er býsna mikið í þessu regluverki losunarheimilda, er að við séum að vinna á mjög litlum hluta vandans með ákveðnar aðgerðir sem eru íþyngjandi að hluta en er ætlað að ná fram ákveðnum markmiðum. Ef við setjum þetta í samhengi við plastvandamálið á heimsvísu er obbinn af þeim vandamálum að koma til allt annars staðar frá en þar sem aðgerðirnar eiga sér stað. Mikill árangur í Norður-Ameríku og Evrópu sérstaklega er hlutfallslega svo lítill af heildarmyndinni. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann út í er afstaða hans til þess með hvaða hætti mætti tengja þessi kerfi betur þeim svæðum þar sem lítil sýn er í þessa veruna. Við sjáum bara að rafmagnsbíll og rafmagnsbíll er sitthvor hluturinn eftir því hvort rafmagnsbíllinn er knúinn af endurnýjanlegri orku hér á Íslandi eða knúinn rafmagni framleiddu úr kolum í ríki sem er með slíka raforkuframleiðslu. Með hvaða hætti sér hv. þingmaður þetta fyrir sér verða að einhvers lags samræmdri nálgun á heimsvísu?