152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

loftslagsmál.

471. mál
[21:41]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég er sammála því að margar þær aðgerðir sem við grípum til hér á landi vinna bara á litlum hluta vandans. En það er líka vegna þess að við erum enn ekki farin í þær grundvallarkerfisbreytingar, hvorki á Íslandi né á heimsvísu, sem eru nauðsynlegar. Svo við tökum dæmi um rafmagnsbílinn þá eru orkuskipti í samgöngum mikilvæg og nauðsynleg og skref sem þarf að taka hér og nú í dag. En til lengri tíma þurfum við að byggja upp samfélag þar sem við þurfum færri bíla. Bíll mengar ekki bara út frá eldsneytinu sem hann er keyrður á heldur er það allt framleiðsluferlið og það eru málmar og alls konar efni grafin úr jörðu til að framleiða bílinn. Hann keyrir á gúmmídekkjum sem spænast upp í nærumhverfið og er á malbiki sem þarf alltaf að verða umfangsmeira eftir því sem bílarnir eru fleiri á götunum. En við sem samfélag og við sem heimsbyggð erum bara ekki komin mjög langt í þeim pælingum hvernig við getum viðhaldið þeim lifistandard og velsæld sem við eigum að venjast án þess að við séum á sama tíma að ganga of skarpt á sameiginlegar auðlindir jarðar. Á sama tíma þurfum við náttúrlega að lyfta til velsældar þeim ríkjum sem ekki hafa fengið sama forskot og við. Það er akkúrat stóra áskorunin, hvernig við náum til þeirra svæða. Við þurfum eiginlega bara að leggja pening í það. Það er kannski einfalda svarið. En þar stóð hnífurinn í kúnni á Glasgow-loftslagsráðstefnunni, að fá ríku löndin til að viðurkenna aukna ábyrgð sína umfram fátæku löndin, bæði á því að leysa vandann og hjálpa fátæku löndunum að vera hluti af lausninni en ekki alltaf þau sem þurfa að bera einhvern veginn sökina fyrir okkar hönd.