152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

loftslagsmál.

471. mál
[22:06]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið og ég tek undir það að málið er flókið. Hvað óbyggðu víðernin varðar er ég bara algjörlega sammála því, í þeim felast gríðarleg verðmæti. En við erum þar í dag, t.d. ef við skoðum kort sem Samorka hefur tekið saman og merkt hvaða áhrif friðanir sem krossast hafa á orkunýtingarmöguleika í kringum landið hafa, að skilaboðin sem þar teiknast upp eru ekki líkleg til þess að auka bjartsýni, ekki mína a.m.k., á að hér takist okkur að auka græna orkuframleiðslu. Í sorpmálunum er ég nú aldeilis sammála hæstv. ráðherra og við í Miðflokknum höfum á hverju ári síðan flokkurinn kom inn á þing 2017, eða kannski var það ekki fyrr en 2018 sem fyrsta framlagning var, lagt fram þingsályktunartillögu í þessum efnum þar sem við leggjum m.a. til að skoðaðar verði forsendur fyrir hátæknisorpbrennslustöðvum. Það kemur inn í það sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson nefndi áðan í tengslum við plastið. Við þurfum að finna leiðir til að nýta það áfram og umbreyta í önnur form orku og það er auðvitað bara þáttur af hringrásarhagkerfinu eins og við þekkjum og þeim mikilvægu markmiðum sem þar er ætlunin að ná fram. En þar erum við einhvern veginn dálítið föst í því að banna plastpoka og ýta mönnum í bréfpoka og fólk þarf að kaupa sér orðið aukaskáp til að geyma alla burðarpokana sem það kaupir í hverri verslunarferðinni á fætur annarri. Okkur eru aðeins mislagðar hendur hvað þessa þætti varðar. Hæstv. ráðherra segir að allar þjóðir séu að reyna að ýta út jarðefnaeldsneyti í samgöngum og það blasir við að það er rétt. En ég held að það sé hlutur sem muni gerast á þeim hraða sem erlendu framleiðendurnir stýra. Okkar innlegg í það verður mögulega í einhvers lags rannsóknar- og þróunarvinnu. Ég held að við munum ekki ná árangri í því (Forseti hringir.) hraðar en þeim sem best gengur annars staðar. Það bara takmarkast af þeim árangri sem framleiðendur þessara tækja eru að ná, (Forseti hringir.) nema hæstv. ráðherra sé að tala fyrir því að við hefjum hér bíla- og flugvélaframleiðslu, sem væri auðvitað áhugaverð vangavelta.