loftslagsmál.
Frú forseti. Mér heyrðist hv. þingmaður hafa dregið þann lærdóm af skýrslu loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna að hér ætti Ísland að auka orkuframleiðslu. Það sýnir hvernig lesskilningur getur verið ólíkur vegna þess að það sem ég las út úr skýrslunni var akkúrat að það þarf stökkbreytingu. Ég held að almenningur sé tilbúinn í samfélagslega stökkbreytingu vegna þess að hún þýðir ekki bara að við vinnum slaginn gegn loftslagsbreytingum heldur á hún að geta séð til þess að nýja græna samfélagið verði réttlátara og betra fyrir okkur öll. Það að tala um einhverjar fórnir til að ná þessum markmiðum á alls ekkert að vera orðræðan hér heldur hvað við vinnum sem samfélag með því að ná þeim, ekki bara í því að forða hörmungum sem við myndum annars lenda í sem heimur heldur líka bara til að verða betra samfélag. Það þarf stökkbreytingu í orkuframleiðslu út um allan heim. Það er eitthvað sem við þurfum ekki mikið að takast á við með okkar vatnsorku. Iðnaður þarf að draga úr losun um allan heim. Þar eru álverin á Íslandi, alveg eins og álverin í Kína, verksmiðjur sem þurfa að taka á sinni losun. Við getum ekki hent vandanum á milli landa heldur þurfum við að leysa hann alls staðar. Engu að síður er það alveg rétt, sem hv. þingmaður nefnir, að það er munur á milli landa. Tökum t.d. rafmagnsbílana. Nú er komin sú tíska að þeir stækka og stækka. Allt í einu eru komnir stórir (Forseti hringir.) pallbílar sem ganga fyrir rafmagni og ef slíkur bíll er keyrður á raforku sem er framleidd með kolum þá losar hann (Forseti hringir.) fyrir hvern kílómetra sem hann ekur miklu meira en venjulegur bensínbíll. Þetta snýst akkúrat (Forseti hringir.) um að við metum árangur, metum skilvirkni þeirra aðgerða sem við grípum til.
(Forseti (LínS): Forseti vill minna hv. þingmenn á tímamörk. )