loftslagsmál.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að það sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson segir hér í niðurlagi andsvarsins, að þetta snúist á endanum allt um skilvirkni ákvarðananna og aðgerðanna, sé útgangspunkturinn sem við þurfum einhvern veginn að komast á, þeir sem í dag eru sitt hvorum megin hryggjar í þessari umræðu. Ég held að leiðin að því marki sé að horfa á þetta sem hnattrænt vandamál. Það er til þekkt orðatiltæki, með leyfi forseta, „Think globally, act locally“, eitthvað í þá veruna. Hugsaðu á heimsvísu og hagaðu þér gagnvart nærumhverfinu, í mjög lélegri þýðingu. Ég held að ef okkur tekst að færa umræðu um loftslagsmálin yfir í hnattrænt samhengi, þar sem reynt er að leggja áherslu á þá þætti sem mestu skila á heimsvísu, þá sé mikið unnið. Hér voru álverin nefnd. Sennilega er hvergi í heiminum framleitt umhverfisvænna ál en á Íslandi. Menn geta síðan verið ósammála um hvort framleiða eigi jafn mikið af því og raunin er og það allt saman en ég held að hægt sé að staðhæfa að óvíða er framleitt umhverfisvænna ál en hér á landi. Á heimsmarkaði sýnist mér þetta ekki vera metið að neinum verðleikum sem skipta máli, t.d. þegar stóru kaupendurnir eins og bílaframleiðendurnir gera upp við sig hvort þeir ætla að kaupa birgðir ársins frá einum stað eða öðrum, hvort álið hafi verið framleitt með endurnýjanlegri, grænni orku eða með kolabruna. (Forseti hringir.) Ég held að þetta sé vandamál sem við ættum að vera að rökræða og tækla og í þessu verður risatækifæri fyrir Ísland.