152. löggjafarþing — 69. fundur,  26. apr. 2022.

loftslagsmál.

471. mál
[22:19]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Þarna lauk hv. þingmaður máli sínu á atriði sem ég held að við getum verið sammála um. Verðlagning á vöru þarf að endurspegla það hversu græn hún er í rauninni. Þeim sem framleiða græna vöru þarf að umbuna fyrir það með því að fá samkeppnisforskot, græna varan þarf að fá samkeppnisforskot. Þangað til við erum komin þangað eru sóðarnir alltaf að fá forskot út á það að vera sóðar. Þessu þarf að snúa við. Þetta er stökkbreyting sem við þurfum að ná í gegn á heimsvísu og myndi t.d. geta birst í því að innflutningsgjöld endurspegli á einhvern hátt vistspor vöru, ekki bara hreint verðmæti hennar í krónum heldur það hversu mikið hún hefur reynt á nærumhverfið í framleiðslu þannig að það verði innbyggður efnahagslegur hvati fyrir framleiðendur að grænka sína framleiðslu og þar með fyrir stórkaupendur og aðra neytendur að velja þá grænu. Síðan er það þetta hagsmunamat, að meta hvaða aðgerðir skila mestum árangri. Þá erum við aftur komin að því sem vantar hjá ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Það hefur ekki verið metið, þegar komið er inn til þingsins með tillögur að lagabreytingum, þá sjaldan þær koma í loftslagsmálum, eða í tillögum að niðurgreiðslu eða einhverjum efnahagslegum aðgerðum til að vinna að loftslagsmarkmiðum, hversu mörgum tonnum í samdrætti í losun það mun skila. (Forseti hringir.) Þetta eru auðvitað tölur sem við þyrftum að hafa í höndunum og væri eitthvað (Forseti hringir.) sem þyrfti að festa í lög um loftslagsmál í frumvarp eins og við höfum hér í dag, en er því miður ekki þar.