loftslagsmál.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni andsvarið. Til að byrja þar sem hv. þingmaður endaði, að ekki sé lagt mat á losunaráhrif frumvarpa, þá hef ég nú kvartað mikið yfir því síðan ég kom inn á þing að lítil vinna sé lögð í að leggja mat á kostnað og tekjur af frumvörpum. Á meðan við höfum ekki náð bærilegu taki á því þá er ég hræddur um að hitt sé töluvert langt inni í framtíðinni þó að ég vilji alls ekki leggjast á móti þeirri hugmynd, sé enga ástæðu til þess. En hv. þingmaður kom inn á annan punkt, að sóðinn megi ekki fá samkeppnisforskot út frá sóðaskapnum í þeim skilningi að ná að framleiða vöruna á hagkvæmari máta en sá sem gengur vel um náttúruna. Er það ekki réttur skilningur hvað meginpunktinn varðar? Þessu get ég verið sammála. En kerfið er það ekki eins og það er. Við erum í þeirri stöðu að verið er að selja aflátsbréf svokölluð sem eru sérstaklega til þess ætluð að þeir sem kaupa orku sem er lítt umhverfisvæn í framleiðslu geti afsett þá skömm sína, ef svo má segja, með því að kaupa aflátsbréf frá framleiðanda eins og t.d. Landsvirkjun hér heima. Þetta eru skilaboð sem hljóta að rugla markaðinn. Sjáum bara stóru þýsku bílaframleiðendurna. Þeir eru mjög umhverfisvænir og samfélagslega meðvitaðir í auglýsingum og einhverjum styrktarsamningum hingað og þangað en þeir gera ekkert með það að leggja áherslu á að álið sé framleitt úr umhverfisvænni orku, ef þeir geta fengið það á betra verði en annars staðar. Aftur fer ekki alveg saman (Forseti hringir.) hljóð og mynd í þessum efnum og þarna er það á endanum bara kúnninn sem tekur ákvörðunina um hvað skiptir máli í þessum efnum.