verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra kærlega fyrir góða framsögu. Ég hef sagt það áður úr þessum ræðustól að ég hef beðið lengi eftir því að sjá þetta frumvarp koma fram og koma hingað inn í sal til umræðu. Ég fagna því mjög og það geri ég fyrst og fremst vegna þess að ég hef trú á því að við séum sem betur fer, í allri þessari orkuumræðu, að þokast í rétta átt þegar kemur að því að horfa til þess að bæta orkunýtingu og leita allra mögulegra leiða til að nýta betur þau mannvirki sem við höfum þegar ráðist í. Ég held að þetta frumvarp sé algerlega liður í því efni og er klárlega, eins og kemur fram í mjög góðri greinargerð með því, allt í takti við áform ríkisstjórnarinnar eins og þau koma fram í stjórnarsáttmála. Svo það sé sagt, þá er þetta mál mér afar mikið að skapi. En það er eitt og annað sem mér finnst áhugavert við þetta og er ég þar á svipuðum nótum og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson. Mér fannst skjóta svolítið skökku við, og langar því að spyrja ráðherrann um það hér, að samkvæmt 1. gr. frumvarpsins á mat Orkustofnunar að liggja til grundvallar því hvort í rauninni hlutaðeigandi stækkun fari í gegnum verkferli rammaáætlunar eða ekki. Í annars ágætri greinargerð kemur fram að það sé eðlilegt að hún leiti til þeirra stofnana eða aðila sem hún telur nauðsynlegt að fá álit frá um viðkomandi stækkun. Mig langar að forvitnast hjá hæstv. ráðherra hvort komið hafi til greina að horfa til annarra stofnana en Orkustofnunar í þessu samhengi.