störf þingsins.
Virðulegi forseti. Völd spilla. Þetta var eitt mikilvægasta gildið sem afi minn heitinn kenndi mér en hann sat einmitt hér á þingi í um 30 ár. Hann lærði þessa lexíu ekki einungis innan veggja þessa salar heldur sá hann fólk í valdastöðum víða um heim, fólk sem hann þekkti og skrifaðist á við, breytast úr hugsjónafólki í valdagráðuga einræðisherra sem einskis svifust til að auka við og tryggja völd sín.
Í umræðum um fundarstjórn forseta fyrr í vor vitnaði ég í orð Johns Wooden sem sagði að það væri mælistika á siðferði fólks hvernig það hegðaði sér þegar enginn sæi til. Útfært fyrir okkur sem störfum í heimi stjórnmálanna færu spakmælin á þann veginn að það sé góð mælistika á siðferði stjórnmálamanna að taka eftir hvernig þeir hegða sér þegar þeir hafa náð völdum. Eru völdin þeim mikilvægari en að bregðast við ójafnrétti? Eru völdin þeim mikilvægari en að bregðast við kynþáttafordómum? Eru völdin þeim mikilvægari en að bregðast við frændhygli? Eru völdin þeim mikilvægari en að bregðast við lögbroti? Já, virðulegi forseti, það er ótrúlegt hve stór hluti stjórnmálamanna fer létt með að láta öll sín margbásúnuðu gildi, siðferðiskennd og samvisku víkja um leið og þau komast í snertingu við minnsta snefilmagn af valdi. Við megum ekki gleyma því að þau sem í þessum valdastólum sitja gera það í krafti þagnarinnar, þagnar þeirra, okkar sem sitjum stillt og prúð á meðan siðferði, jafnrétti og jöfnuður eru fótum troðin fyrir sakir valdsins. (Forseti hringir.)
Virðulegi forseti. Ég skora á samstarfsfólk mitt hér inni að standa í lappirnar gegn spillingu valdsins.
(Forseti (BÁ): Forseti verður að minna hv. ræðumenn á að ræðutími í störfum þingsins er takmarkaður.)