152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

störf þingsins.

[15:17]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Ómannúðlegt útlendingakerfi íslenskra stjórnvalda er ekki bara kerfi heldur snertir það einstaklinga. Þess vegna skiptir svo miklu máli að við fáum af og til fréttir af því hvernig kerfið kemur fram við fólk, fólkið sem leitar hér hjálpar og aðstoðar. Í fréttum í dag lásum við um Dariu Novitskayu sem þurfti að flýja pólitískar ofsóknir í Belarús. Hún lenti síðan í því hér á landi að vera beitt kynferðisofbeldi. Það brot er enn í rannsókn. Hvernig ætla íslensk stjórnvöld að standa með Dariu? Þau ætla að vísa henni úr landi. Hvert ætlum við að vísa henni? Til Póllands sem var fyrsta Schengen-ríkið þar sem Daria steig fæti eftir að hafa flúið Belarús. Haldið þið að Pólland geti, með fjórar milljónir flóttamanna frá Úkraínu, veitt Dariu þá aðstoð sem hún á skilið? Haldið þið að Ísland sé ekki í betri færum með það? Málið er að Daria er eiginlega skólabókardæmi um fólkið sem æ ofan í æ er endursent án þess að hljóta áheyrn hjá íslenskum stjórnvöldum. Árum saman hafa íslensk stjórnvöld stundað það að endursenda fólk, sérstaklega inn í brotin verndarkerfi Grikklands, Ítalíu og Ungverjalands, þvert á það sem er fólkinu sjálfu fyrir bestu, þvert á það sem er þessum ríkjum fyrir bestu. Þau gera það með ærnum tilkostnaði, eins og kom fram í skriflegu svari dómsmálaráðherra hér fyrr í vikunni. Það kostar tvær milljónir að flytja hvern hælisleitanda úr landi með valdi. Þessum tveimur milljónum tímir ríkisstjórnin til þess að brjóta á mannréttindum fólks. (Forseti hringir.)

Herra forseti. Rasismi er kerfislægt fyrirbæri (Forseti hringir.) og hann birtist alls staðar. Hann birtist gagnvart einstaklingum án þess að einhver taki meðvitaða ákvörðun um að (Forseti hringir.) beita honum. Endursendingar hælisleitenda inn í brotin verndarkerfi víðs vegar um Evrópu (Forseti hringir.) eru ein skýrasta birtingarmynd kerfislægs rasisma á Íslandi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)