störf þingsins.
Forseti. Hæstv. heilbrigðisráðherra hefur svarað tveimur fyrirspurnum um geðlyfjanotkun í viðkvæmustu hópum samfélagsins. Niðurstöður eru sláandi. Notkun geðlyfja hjá börnum hefur aukist til muna frá árinu 2012 í öllum aldursflokkum. Hlutfallið hefur hækkað úr 12% upp í tæplega 25% barna. Eitt af hverjum fjórum börnum á Íslandi á aldrinum 14–17 ára er nú á einu eða fleiri geðlyfjum. Tæplega 19% barna á aldrinum 10–13 ára á Íslandi eru á geðlyfjum. Er það ekki áhyggjuefni að notkun geðlyfja, sem sum hver eru ávanabindandi, hafi aukist svona mikið meðal barna undanfarin ár? Lyfjastofnun leiðir að því líkur í skýrslu frá 2017 að þessi lyfjanotkun sé afleiðing þess að ekki sé boðið upp á viðeigandi úrræði á Íslandi. Sálfræðiþjónusta er þar að auki ekki niðurgreidd þrátt fyrir að vitað sé að fyrsta meðferð og áhrifamesta úrræðið við kvíða, til að taka dæmi, eigi alltaf að vera gagnreynd samtalsmeðferð. Það er vanræksla af hálfu ríkisstjórnarinnar sem setur viðeigandi úrræði fyrir börn ekki í forgang þrátt fyrir að vita vel af þessari ógnvænleg þróun.
En hvað með aldraða? Í svari hæstv. heilbrigðisráðherra kemur fram að 70% einstaklinga á hjúkrunarheimilum eru á einu eða fleiri geðlyfjum. Í svarinu segir, að rannsóknaniðurstöður sýni fram á mikilvægi þess að sérstaklega sé vandað til ávísana geðlyfja til aldraðra einstaklinga og að þær byggi á nákvæmri geðskoðun. Það kemur fram í rannsóknaniðurstöðum í Læknablaðinu að árið 2018 fengu 18% íbúa á hjúkrunarheimilum landsins ávísuð geðlyf til að taka að staðaldri án geðgreiningar. Þrátt fyrir það segir í svari hæstv. heilbrigðisráðherra, með leyfi forseta: „Ekki er gert ráð fyrir sérstakri endurskoðun á ávísun lyfja fyrir aldraða á hjúkrunarheimilum eins og sakir standa.“ Það er undarlegt að hæstv. ráðherra vilji ekki endurskoða ávísun lyfja fyrir aldraða á hjúkrunarheimilum. Að mínu viti ætti með reglulegu millibili að endurskoða lyfjagjöf, (Forseti hringir.) sérstaklega í ljósi þess hversu margir eru á lyfjum án greininga. Lausnirnar virðast vera lyf, lyf og meiri lyf frekar en úrræði, (Forseti hringir.) plástrar í stað heildrænnar nálgunar og langtímalausna. (Forseti hringir.) Er það virkilega stefna sem við getum sætt okkur við?