152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

störf þingsins.

[15:31]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Forseti. Á fundi fjárlaganefndar í morgun með Bankasýslunni fengum við að heyra og sjá svart á hvítu að hlutverk Bankasýslunnar var að framkvæma ákvarðanir fjármálaráðherra við sölu á Íslandsbanka. Ríkisstjórnin tók ákvörðun um sölu og útfærslu á banka í almannaeigu, Bankasýslan framkvæmdi. Stærsti gallinn við þessa útfærslu var bara að hún þjónaði ekki hagsmunum almennings sem áttu bankann, heldur hagsmunum hinna fáu. Á ráðherrafundi um efnahagsmál þar sem saman sitja forsætisráðherra, fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra var hugmyndin um lokað útboð kynnt án þess að nokkrar vinnureglur lægju fyrir um hvernig ætti að framkvæma söluna.

Fundurinn í morgun sýndi líka fram á að salan var í algjöru blindflugi. Bankasýsla og fjármálaráðherra segjast ekkert vita hverjir voru kaupendur. Þeim birtist bara listi nánast af himnum ofan, listi með alls konar fólki og hlægilega lágum upphæðum. Listinn datt bara í fangið hjá fjármálaráðherra. En listinn lítur út eins og raun ber vitni vegna þess að náin samvinna fjármálaráðherra og Bankasýslunnar skilaði engum viðmiðum, engum reglum, engum skilyrðum. Ríkisstjórnin talar þess vegna núna stöðugt um armslengdarsjónarmið, en í minnisblaði Bankasýslunnar segir frá miklum samskiptum við fjármálaráðuneytið alveg frá því að tillagan um söluna var kynnt í janúar og alveg fram að sölunni í mars. Fulltrúar ráðuneytisins voru á fundum Bankasýslunnar þegar ákveðið var að ráðast í útboð, á fundum þangað til lokað var fyrir áskriftir. Kvöldið sem útboðið fór fram voru Bankasýsla og ráðuneyti í náinni samvinnu, á söludaginn sjálfan. Það var engin armslengd, það voru a.m.k. heimsins stystu hendur. Sjálfstæðisflokkurinn talar þess vegna núna um að við þurfum að horfa á stóru myndina. En 83% þjóðarinnar sjá stóru myndina, það sést á fylgisflóttanum. Ríkisstjórnin er fallin einmitt vegna þess að fólk sér og skilur stóru myndina. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)