störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er ágætt að spyrja sig öðru hvoru til hvers er ætlast af okkur. Hér í dag hefur verið lögð áhersla á að við séum hér í almannaþágu og ég er nokkuð viss um það, eftir að hafa gert óformlega könnun meðal bræðra og systra í þinginu, að flestir séu sammála um hið hvellskýra og ofureinfalda lykilmarkmið okkar í Flokki fólksins: Fólkið fyrst, svo allt hitt. Hvað felst í þeim orðum? Það felst í því m.a. að við líðum ekki að hér séu í mikilli vanlíðan, í mikilli fátækt og mikilli örvilnan þúsundir og tugþúsundir samlanda okkar. Það er forgangsmál okkar allra að bæta úr því. Með fullri virðingu fyrir því sem ég les hér á dagskrá dagsins í dag — það er ýmislegt um EES-samninginn, innleiðsla, verndunar- og orkuáherslur, Slysavarnaskóli sjómanna, frjáls atvinnu- og búseturéttur launafólks innan EES, sorgarleyfi, evrópskir langtímafjárfestingarsjóðir og sitthvað annað. Ég hefði gjarnan viljað sjá meiri tíma varið í grunntilgang okkar allra, sameiginlegan. Ég skora á alla þá sem hér sitja í flokki framsækinna, í flokki sjálfstæðra, í flokki Vinstri grænna, í flokki Viðreisnar, í flokki Miðflokks og allra sem sitja hér á þinginu, að við megum bera gæfu til þess að snúa bökum saman fyrr en seinna um að koma lykiláherslunum, því allra brýnasta í samfélaginu, á dagskrá þessa þings fyrir þinglok. Nýtum síðan sumarið til að ná sátt um næsta þing og megi það verða gjöfult og gott og samstiga þing ef guð lofar.