152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

lengd þingfundar.

[15:46]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Hv. þm. Helga Vala Helgadóttir fór alveg ágætlega yfir þetta í sinni ræðu hér á undan mér. Það er einmitt furðulegt að þegar það eru stórir fundir, grasrótarfundir þar sem þingmenn og formenn eru boðaðir — skiljanlega, ríkisstjórnin er fallin. Skiljanlega þarf fólk að funda og ræða við sína grasrót. En ef fólk ætlar ekki að mæta hérna, ef þingmenn stjórnarflokkanna ætla ekki að mæta á þingfundi, ætla ekki að mæta í vinnuna, þá skil ég ekki af hverju er verið að boða lengri þingfund. Þetta eru athugasemdirnar í hnotskurn.