152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

lengd þingfundar.

[15:50]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vil taka heils hugar undir með samflokkssystur minni, Steinunni Þóru Árnadóttur, það gleður mig bara stórlega og ég greiði glaður atkvæði með lengdum þingfundi. Hér hafa verið ansi áhugaverðar umræður og samræður undanfarin kvöld og líkt og þau kvöld munum við að sjálfsögðu í Vinstri grænum taka þátt í þeim umræðum sem við þurfum að taka þátt í, að sjálfsögðu. Það sem ég vil hins vegar benda á í þessu samhengi, sem hefur kannski farið fram hjá einhverjum hér, er að það eru auðvitað sveitarstjórnarkosningar í aðsigi og það þarf að ræða ýmislegt í baklandinu. Ég treysti því að það sé gert í öllum stjórnmálahreyfingum og það er eitt af því sem við ætlum að ræða í kvöld t.d.