lengd þingfundar.
Herra forseti. Það breytir kannski ekki öllu hvort þingmenn stjórnarflokkanna eru í húsi eða ekki, nógu lítið tala þau í stjórnarmálum svona dags daglega þannig að viðveran er ekki það nauðsynlegasta. En hver er þörfin á lengri þingfundi? Það var bara ágætur gangur í umræðum í gær. Við komumst í gegnum nokkur mál og forseti er ekki stressaðri en svo fyrir næstu dögum að hann ætlar að taka tvo, tvo og hálfan tíma á morgun í skýrslugjöf umhverfisráðherra um orkumálaskýrslu sem við tókum sérstaka umræðu um fyrir tveimur mánuðum. Fyrirgefðu, forseti, en hvaða tíma vantar? Hvaða mál á dagskrá eru svo brýn að við verðum að komast í að ræða þau í kvöld? Getur forseti upplýst okkur um það? (Gripið fram í.) Eða gæti hann, til að slá aðeins á áhyggjur okkar sem stöndum með mannréttindum fólks á flótta, og til að sýna góðan vilja tekið það mál af dagskrá? (Forseti hringir.) Ég væri til í að samþykkja lengdan þingfund ef forseti tæki það mál af dagskrá (Forseti hringir.) og lofaði þar með að það færi ekki í umræðu í dag. Er forseti tilbúinn til þess?