lengd þingfundar.
Herra forseti. Bara í framhaldi af því sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason sagði þá er ekkert að því að ræða orkumál hér í þingsal. En ef tíminn er einhver lúxusvara í dag sem við þurfum að lengja þingfundi til að fá meira af þá er kannski hægt að endurhugsa það að ætla að splæsa tveimur og hálfum klukkutíma á morgun af dýrmætum þingfundatíma í að ræða skýrslu sem er búið að ræða hér í þingsal einu sinni. Ræðum hana endilega aftur, gerum það bara þegar það er tími til þess.
Annars langar mig að benda bara á orð hv. varaformanns þingflokks Vinstri grænna sem lýsti ánægju sinni með það ef við kæmumst í útlendingamálið í dag og sagði síðan að ef við kæmumst í hið umdeilda mál nr. 14, sem og önnur mál — enda eru þau góð og þurfa að komast til nefndar. Enda eru þau góð, þurfa að komast til nefndar. Svona er fólk orðið samdauna. Svona er fólk orðið til í að liðka fyrir viðbjóðslegum málum í nafni stjórnarsamstarfs sem ætti að vera löngu dautt.