152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

lengd þingfundar.

[16:01]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Lengd þingfundar. Jú, ég greiði atkvæði með því að við getum haft lengri þingfund, en ég vil hins vegar taka það fram að mér bæði ljúft og skylt að ef svo fer að mál nr. 16 verður komið hér á dagskrá þá get ég alveg vikið af félagsfundi Vinstrihreyfingarinnar – græns framboð og veit að fyrir því er fullur skilningur í okkar grasrót. Ég hef reyndar ekki mikla trú á því að dagskráin muni renna svo ljúflega í dag en það mun ekki standa á mér að mæta á þingfund. Sem varaforseti sem sit hér löngum stundum og hlusta á mína ágætu háttvirtu kollega í þessum sal, þá er nú ekki alltaf þéttsetinn bekkurinn, hvorki stjórnarliðar né stjórnarandstaða, af því að eðli máls samkvæmt erum við að sinna ýmsum öðrum störfum og það vitum við öll.