152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:13]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Við skulum bara tala skýrt hérna, við skulum bara tala um það sem þetta mál snýst um. Meiri hlutinn hefur talað mikið um að ríkisendurskoðanda sé treystandi og hann sé frábær og við erum öll sammála um það. Meiri hlutinn hefur ekki á neinum tímapunkti útskýrt hvers vegna þau vilja ekki að það verði skipuð rannsóknarnefnd Alþingis. Það hefur aldrei verið útskýrt. Það hefur aldrei verið rökstutt. Ef það hefði verið fallist á það, ef það hefði bara verið ráðist í það strax í upphafi þá stæðum við ekki hér. Þá værum við ekki að þræta um þetta. Þá væri traust þjóðarinnar mögulega ekki í því lágmarki sem það er akkúrat núna. En hvers vegna vill ríkisstjórnin ekki rannsóknarnefnd Alþingis? Vegna þess að niðurstöður rannsóknarnefndar Alþingis gætu stofnað þessari ríkisstjórn í hættu. Það er ólíklegt að rannsókn ríkisendurskoðanda muni gera það. Við skulum bara tala skýrt, tala hreint út hérna.