152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:15]
Horfa

Óli Björn Kárason (S):

Herra forseti. Beiðni hæstv. fjármálaráðherra var að Ríkisendurskoðun myndi fara yfir það hvort fylgt hefði verið lögum og góðum stjórnsýsluháttum við sölu á Íslandsbankabréfunum. Það er þannig. Í bréfi ríkisendurskoðanda kemur fram, þar sem hann vitnar í 1. gr. laga um ríkisendurskoðanda, að ríkisendurskoðandi sé sjálfstæður og engum háður í störfum sínum og ákveði sjálfur hvernig hann sinnir hlutverki sínu samkvæmt lögum. Það að tala síðan hér eins og menn hafa gert á undanförnum dögum, eins og ríkisendurskoðandi sé að gera úttekt á einhverjum forsendum fjármálaráðherra, er auðvitað ómerkilegur málflutningur og menn ættu að láta af honum. (Forseti hringir.) Ég óska þess, hæstv. forseti.