152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:19]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Herra forseti. Það er dálítið ótrúlegt að fylgjast með þessari umræðu hérna. Ég er komin hingað upp til að minna á ræðustúf sem ég flutti hér í gær og hvet þingmenn til að finna inni á Alþingissíðunni ef þeir voru ekki í salnum, sem er ótrúlegt miðað við fyrri orð, eða ef þeir heyrðu hreinlega ekki orð mín. En ég ætla aðeins að fá að vitna í hana. Ég ætla að vísa í lög nr. 68/2011, um rannsóknarnefndir: „Skipun rannsóknarnefndar er úrræði sem ber einungis að nota ef einsýnt er að ekki er unnt að notast við hin hefðbundnu rannsóknarúrræði.“ Það er ekki einsýnt um að það sé ekki hægt. Við höfum ekki sagt að ekki verði skipuð rannsóknarnefnd. (Gripið fram í: Jú.) Við erum að tæma önnur úrræði fyrst. Það er ekki hægt að segja þetta skýrar.