152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:22]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Hv. þm. Jódís Skúladóttir er því miður farin úr salnum þannig að það er ekki hægt að hrekja öðru sinni orð hennar frá því í gær og vænti ég þess að hún hlusti bara á formann hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

Aðeins varðandi það sem hv. þm. Óli Björn Kárason sagði um 1. gr. laga um ríkisendurskoðanda en Óli Björn Kárason er líka farinn úr salnum. Þá er ekki hægt annað en að horfa á 17. gr. sem er varðandi það að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd getur óskað eftir aðkomu Ríkisendurskoðunar og skýrslu frá Ríkisendurskoðun og gildir ákvæðið einnig ef níu þingmenn óska eftir skýrslu eða rannsókn. Það er ekkert í lögum um Ríkisendurskoðun sem heimilar ráðherra að krefjast þess, ekki neitt. Ríkisendurskoðun fer í frumkvæðisathugun sem þýðir að eigin frumkvæði eða þá að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á að gera það eða ef níu þingmenn óska eftir því að Ríkisendurskoðun fari í rannsókn. Við skulum bara halda því til haga (Forseti hringir.) að þetta ákvæði sem hv. þingmaður las hér upp er bara eitt af nokkrum í lögum um Ríkisendurskoðun.