152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:35]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Hér kemur hver þingmaður stjórnarandstöðunnar á fætur öðrum í pontu og lýsir yfir eindregnum stuðningi og trausti í garð ríkisendurskoðanda á sama tíma og það er reynt að gera tortryggilegt með einhverjum hætti hvernig tiltekna rannsókn bar að garði. Og af því að hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson vísar hér í kýrskýr lög um Ríkisendurskoðun þá langar mig til að benda á að það er alveg kýrskýrt samkvæmt sömu lögum að ríkisendurskoðandi er fullkomlega sjálfstæður og óháður í sínum störfum og það hefur ekkert, nákvæmlega ekkert að gera með það hvernig tiltekna rannsókn bar að garði.

Svo langar mig líka til að minnast á að það virðist hafa kvarnast aðeins úr þingsalnum í hópi stjórnarandstöðuþingmanna. Ég ætla rétt að vona að það sé ekki félagsfundur.