152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

ákvörðun nr. 383/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

411. mál
[16:44]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Það var mér sönn ánægja að vera samþykkur áliti utanríkismálanefndar þar sem ég sit sem áheyrnarfulltrúi. Það er sérstaklega vegna þess að hér er enn ein reglugerðin um fjármálaþjónustu frá Evrópusambandinu. Henni er ætlað, eins og flestum öðrum reglugerðum um fjármálaþjónustu frá Evrópusambandinu, að laga hið brotna regluverk sem leiddi til efnahagshrunsins fyrir 14 árum síðan, reglugerðum sem er ætlað að tryggja hag og réttindi neytenda og stöðva ólöglega og siðferðislausa hegðun fjárfesta. Já, það kemur stundum eitthvað gott frá Evrópusambandinu.

Hér er t.d. verið að setja upp stöðugra og virkara regluverk í kringum svokölluð eignarhaldsfélög. Það er heiti sem er notað um einkahlutafélög sem hafa það markmið að halda utan um eignir einstaklinga. En af hverju skiptir máli að hafa gott regluverk í kringum eignarhaldsfélög? Já, tökum nýlegt dæmi. Fyrir utan lífeyrissjóði, fyrirtæki og fjárfestingarfélög voru flestir þeir sem gerðu tilboð í Íslandsbanka nú fyrir stuttu einmitt eignarhaldsfélög. Hvað hafa þessi regluverk Evrópusambandsins gert fyrir okkur þegar kemur að þessu? Tökum nokkur dæmi. Regluverkið tekur t.d. utan um það hverjir raunverulegir eigendur slíkra félaga eru. Regluverkið skilgreinir einnig hvað fagfjárfestar eru og fjármálaregluverk Evrópusambandsins sem við innleiðum setur einnig upp reglur sem tengjast því hvernig mútur eða greiðslur tengdar hryðjuverkum eru höndlaðar.

Förum aðeins dýpra í þetta. Raunverulegir eigendur. Af hverju skiptir máli hverjir raunverulegir eigendur eignarhaldsfélaga eru? Jú, ein ástæðan gæti verið sú að gera það erfiðara að svíkja undan skatti, að við getum séð hver sé í rauninni á bak við viðkomandi eignarhaldsfélag. Önnur ástæða gæti verið að tryggja ákveðna dreifingu valds. Við hér á landi erum t.d. með reglur sem segja til um það hversu hátt hlutfall einn aðili getur átt í sjávarútvegsfyrirtækjum eða í kvótanum yfir höfuð. Með því að vita hverjir eru raunverulegir eigendur í þeirri fléttu sem oft er búin til er hægt að sjá hvernig raunveruleg dreifing á valdinu er. Svo er þriðja ástæðan sú að hægt sé að sjá hverjir séu raunverulega að fá greiðslur í gegnum einkahlutafélög og þar með taka á hlutum eins og mútum og fjármögnun hryðjuverka. Hluti af þeim reglum sem koma með þessu í gegnum Evrópusambandið er einmitt það að við getum á auðveldan hátt flett upp hverjir eru raunverulegir eigendur félaga, einfaldlega með því að fara inn á vef ríkisskattstjóra, slá inn nafnið á viðkomandi eignarhaldsfélagi og sjá hverjir stjórna því og hverjir eiga eignarhluta í því. Mjög auðvelt, nokkuð sem ég hef prófað að gera þó nokkrum sinnum þegar ég sé nöfn á hinum og þessum eignarhaldsfélögum.

Nóg um raunverulega eigendur í bili. Fagfjárfestar, þetta er hugtak sem hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga og vikur. Grunnhugmyndin á bak við að skilgreina hvað fagfjárfestir er er að gera greinarmun á því hvort viðkomandi aðili sé að fjárfesta sem almennur neytandi eða aðili með dýpri skilning á þeirri áhættu sem er við fjárfestingar. Það er mikilvægt að átta sig á því að skilgreining á fagfjárfesti er ekki hvort viðkomandi sé hæfur fjárfestir. Það er tvennt ólíkt. Það hvort þú sért fagfjárfestir er reyndar skilgreint í lögum. Það skemmtilega er að ef borin eru saman lög um markaði og fjármálagerninga, sem uppfærð voru í júní á síðasta ári, og reglugerðir Evrópusambandsins, önnur þeirra frá 2014 og hin frá 2017, þá eru einmitt í íslensku lögunum notaðar skilgreiningarnar upp úr Evrópusambandsreglugerðunum, rétt eins og við erum að vinna í að koma úr þessari þingsályktunartillögu yfir í lög hér á Íslandi.

Í lögum um fjármálagerninga segir, með leyfi forseta:

„Fagfjárfestir: Viðskiptavinur sem býr yfir reynslu, þekkingu og sérfræðikunnáttu til að taka sjálfur ákvarðanir um fjárfestingar og meta áhættuna sem þeim fylgir.“

Í lögunum kemur síðan listi yfir hvaða aðilar teljast til fagfjárfesta og með leyfi forseta ætla ég bara að taka stóru punktana. Það eru aðilar sem hafa starfsleyfi á fjármálamörkuðum, t.d. verðbréfafyrirtæki, það eru stórfyrirtæki sem uppfylla ákveðin skilyrði um veltu eða stærð efnahagsreiknings. Athyglisvert er líka að ríkisstjórnir eru skilgreindar sem fagfjárfestar og seðlabankar líka. Meira að segja Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er skilgreindur sem fagfjárfestir. Aðrir stofnanafjárfestar — þarna er sennilega verið að tala um aðila eins og lífeyrissjóði og slíkt. Svo koma í lokin aðilar sem samþykktir hafa verið sem fagfjárfestar skv. 54. gr. laganna. Í 54. gr. segir, með leyfi forseta, að hægt sé að sækjast eftir því að vera skilgreindur sem slíkur en þá þarf viðkomandi að uppfylla a.m.k. tvö af eftirfarandi skilyrðum:

„1. Hann hafi átt umtalsverð viðskipti á viðeigandi markaði næstliðna fjóra ársfjórðunga, að meðaltali a.m.k. tíu sinnum á hverjum ársfjórðungi.

2. Verðgildi fjármálagerninga og innstæðna fjárfestis nemi samanlagt meira en jafnvirði 500.000 evra, miðað við opinbert viðmiðunargengi eins og það er skráð hverju sinni.

3. Fjárfestir gegni eða hafi gegnt, í a.m.k. eitt ár, stöðu í fjármálageiranum sem krefst þekkingar á fyrirhuguðum viðskiptum eða þjónustu.“

Þá vitum við hvað er að vera fagfjárfestir. Þá skilgreiningu fáum við einmitt í gegnum svona regluverk frá Evrópusambandinu.

Förum yfir í þriðja hlutinn sem ég nefndi, reglur um mútugreiðslur og fjármögnun hryðjuverka. Við getum náttúrlega öll áttað okkur á því hvað er að vera hryðjuverkamaður og fjármagna það. Við skulum vona að við þurfum ekki að taka á því hér á landi. Reglur um mútur tengjast því að passa upp á að fólk sem hefur sterk pólitísk tengsl, það sem á ensku er kallað, með leyfi forseta, „politically exposed person“, oft kallað PEP og við getum öll verið mjög peppuð yfir því, enda erum við öll skilgreind sem slík. Regluverkið sem Evrópusambandið hefur komið með til okkar í tengslum við slíkt er þannig að passað sé upp á að ekki geti verið auðvelt að koma peningum til stjórnmálamanna t.d. sem þannig lagað eru einhvern veginn að fá peninga undir borðið. Þetta þýðir að öll viðskipti okkar sem eru skilgreind undir þessu, þ.e. öll viðskipti okkar sem erum peppuð eða erum stjórnmálamenn, eru tilkynningarskyld. Það er ekki hægt að framkvæma viðskiptin nema því sé flaggað að viðkomandi viðskipti séu í tengslum við aðila sem er tilkynningarskyldur. Það er mikilvægt að átta sig á því að þessi regla gildir ekki bara fyrir mig eða aðra hv. þingmenn hér inni heldur gildir hún einnig fyrir börnin mín, tengdabörn og foreldra. Móðir mín keypti hús um daginn. Hún þurfti að flagga því. Því var flaggað að hún væri að kaupa hús sem aðili tengdur stjórnmálamanni. Þetta gildir hvort sem verið er að kaupa hús, hlutabréf eða kaupa eða selja rafmyntir. Ef ég legg inn meira en, mig minnir að það séu um 20.000 kr. í seðlum í banka þarf að flagga því. Svona eru reglurnar, til að passa mútugreiðslur séu ekki að eiga sér stað. Það gildir, eins og ég sagði líka, þegar hlutabréf í fyrirtækjum eru keypt.

Virðulegur forseti. Þessar reglur og regluverk gerir okkur kleift að gera eftirfarandi þegar við t.d. ákveðum að selja hlut í ríkiseign. Í fyrsta lagi leyfir það okkur að skilgreina útboð á þeim hluta í ríkiseigninni á þannig máta að einungis fagfjárfestar geti tekið þátt. Munum aftur að það getum við þakkað regluverkinu frá ESB eins og því sem við erum að samþykkja hér. Númer tvö: Þegar tilboðum hefur verið skilað inn í slíku útboði þá gerir það okkur kleift að skoða hverjir séu í raun á bak við þau eignarhaldsfélög sem gerðu tilboðin. Þetta var t.d. notað, samkvæmt fundi í morgun, af Bankasýslunni til þess að geta flokkað þau tilboð og þá sem gerðu þau tilboð eftir því hverjir stóðu á bak við skrýtin nöfn á eignarhaldsfélögum. Í þriðja lagi gerir þetta okkur kleift að passa upp á að þegar einhver sem gerir tilboð er nátengdur stjórnmálamanni, eða PEP, þá sé því á auðveldan hátt flaggað.

Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að hafa gott regluverk svo að þegar við ráðumst í jafn stórar aðgerðir og að selja stóran hluta í einum af þremur bönkum landsins þá sé það gert á réttan máta. Regluverk sem tryggir að hægt sé að velja fjárfesta sem uppfylla skilyrði en líka að velja fjárfesta sem eru hæfir samkvæmt þeirri kríteríu, þeirri skilgreiningu, sem við viljum hafa um fjárfesta. Viljum við t.d. fá kvika fjárfesta eða langtímafjárfesta? Við höfum t.d. heyrt að aðilar voru útilokaðir frá útboðinu í Íslandsbanka af því að þeir, þegar búið var að skoða hverjir voru þar á bak við, voru skilgreindir sem kvikir. Það er líka hægt að nota það nákvæmlega sama þegar þú sérð hverjir sitja þarna á bak við til að athuga hvort viðkomandi aðilar t.d. sitji undir rannsókn á glæpum eða notað flöggunina til þess að finna þá sem eru nátengdir stjórnmálamönnum.

Við getum þakkað fyrir að þetta regluverk og önnur regluverk sem koma frá Evrópusambandinu stoppa okkur í því að klúðra sölu á ríkiseignum, þ.e. ef við förum eftir því góða regluverki sem Evrópusambandið hefur samið fyrir okkur.