152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

ákvörðun nr. 383/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

411. mál
[17:10]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Hér erum við að setja reglur um eignarhaldsfélög. Það er reyndar athyglisvert í þessari löggjöf að margar af skilgreiningunum á því hvar þurfi að laga hluti og hvar þurfi að elta hluti eru oft í stærðarhlutföllum sem íslenski markaðurinn þekkir ekki. Hér er t.d. talað um fjármálafyrirtæki sem tilheyra samstæðu með minnst 40 milljarða evra eignir á Evrópska efnahagssvæðinu. Ég veit ekki til þess að neinir af íslensku bönkunum séu af þessari stærð. En það er hins vegar mikilvægt, eins og hv. þm. Ásthildur Lóa Þórsdóttir benti á, að við séum með reglur og regluverk sem tekur á þeim hlutum sem við sáum því miður vera misnotaða í hruninu. Það er alltaf þannig að þegar við breytum reglum og losum um þær þá virðist vera að fólk nýti sér það frjálsræði til þess að græða peninga, oft á kostnað neytenda.

Það er mikilvægt í svona reglum, ég nefndi t.d. áðan reglurnar um fagfjárfesta eða það sem á ensku í reglugerðum Evrópusambandsins er kallað „professional clients“, að hafa svona aðgreiningar vegna þess að þegar verið er að bjóða út hlut í fyrirtækjum þá er rosalega auðvelt að plata fólk. Það eru til gamlar sögur frá því fyrir rúmum 20 árum þegar Íslensk erfðagreining var að selja hlutabréf, áður en þeir fóru á markað. Það voru mikil viðskipti með þau hlutabréf og ef ég man rétt var hluturinn kominn upp í 60–70 dollara, var svo skráður á markað í kringum 18 eða 20, og endaði síðan á því, áður en það var tekið og gert að einkafyrirtæki, að hluturinn var kominn niður fyrir dollara. Það var nefnilega þannig að það var voða auðvelt að selja einstaklingum á þeim tíma: Hér er næsta frábæra fyrirtæki á Íslandi og það er svona mikils virði. Með því að setja skilyrði eins og hvað er fagfjárfestir þá er hægt að vernda neytendur frá því að einhverjir söluaðilar séu að pranga upp á þá fyrirtækjum án þess að fólk hafi nægilegan skilning á því hverju sé verið að pranga upp á það. Það er mjög mikilvægt að við vinnum vel slíka hluti. Það eru ófáar kvikmyndirnar sem við höfum séð um hvernig í sumum tilvikum var hreinlega verið að hringja í fólk og selja því eitthvað sem var í raun ekki til. Það liggur við að þetta sé jafn slæmt, þarna er hægt að selja fólki eitthvað sem er að vísu til en hefur það nógu mikinn skilning á því hvort verðmætið sé raunhæft eða hvort kostnaðurinn við það sem verið er að bjóða sé raunhæfur eða ekki? Það er alltaf spurningin. Munurinn er sá að þegar verið er að fara í svona algjörlega opið útboð til almennings þá þarftu að koma með miklu meira af upplýsingum og miklu meira af gögnum til almennings á formi sem hann skilur til að hann geti tekið ákvörðun. Þegar verið er að vinna með fagfjárfesta er hægt að vera með minni útboðslýsingar af því að ætlast er til þess að þeir geti lesið þær lýsingar af þeirri þekkingu sem þeir hafa.

Neytendavernd í fjármálaþjónustu er því nokkuð sem hefur komið oft til umfjöllunar, bara á þeim vikum eða mánuðum sem ég hef setið í utanríkismálanefnd, en við fáum allar þessar Evrópusambandsreglugerðir nokkrum sinnum vegna þess að þær koma fyrst sem þingsályktunartillögur og svo sem frumvörp o.s.frv. Ef ég man rétt er yfir helmingurinn af þeim sem hafa komið inn tengdur fjármálageiranum. En það væri gaman að skoða það svolítið, kannski að einhverjir sem vantar efni í ritgerð eða verkefni í hagfræði eða viðskiptum eða lögfræði færu og skoðuðu t.d. hver hallinn er. Er meira af reglugerðum tengdum fagfjárfestum og fjármálastofnunum eða neytendum og neytendavernd? Það væri áhugavert að sjá slíkt vegna þess, eins og hv. þingmaður benti á, að stundum finnst okkur of margar reglur vera settar fyrir okkur sem erum neytendur. Kannski finnst fjármálafyrirtækjunum vera komnar of miklar reglur um þau en sumar þeirra eins og greiðslureikningsreglurnar, sem heita P eitthvað 2, ég man ekki alveg, ég er ekki með það skrifað niður, opna á það að svokölluð fjártæknifyrirtæki geti nýtt sér banka og bankar verða að veita þeim aðgang að sínum kerfum. Hluti af því kemur vegna regluverks frá Evrópusambandinu. Regluverkið er ekki endilega bara um neytendavernd. Þetta er líka til að tryggja samkeppni og aðra hluti sem svo sannarlega veitir ekki af hér á landi þar sem við erum einungis með þrjá banka og mjög álíka gjaldskrár og þjónustu og annað sem þeir eru að veita. Og það verður athyglisvert að sjá hvernig það þróast núna á næstu árum eftir því sem markaðurinn opnast með sterkara regluverki.