152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

ákvörðun nr. 383/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

411. mál
[17:19]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú erum við komin að máli sem ég hef mikinn áhuga á, neytendavernd. Reglugerðir sem eiga að beinast að fjármálafyrirtækjum og fagfjárfestum virðast mjög oft bara vera yfirfærðar yfir á neytendur en hins vegar er neytendaverndin sama sem engin. Það er einmitt ástæðan fyrir mínu vantrausti, sem ég hef rætt hér, á Fjármálaeftirlitinu vegna þess að það hefur ekkert eftirlit og bankarnir geta í rauninni hagað sér eins og þeir vilja gagnvart neytendum. Það hefur margsýnt sig. Eitt af því sem má nefna í þessu sambandi, fyrst við erum að tala um fagfjárfesta og að það sé ekki verið að pranga inn á neytendur einhverju sem bara fagfjárfestar eiga að hafa kunnáttu til að meta — vitið þið að það er gert á hverjum einasta degi á Íslandi í verðtryggðum lánum? Verðtryggð lán eru flókin afleiðulán sem eiga eingöngu að vera á milli fagfjárfesta og á milli fagfjárfesta og ríkis. Þess vegna eru þau hvergi í heiminum í notkun, alla vega ekki á Vesturlöndum, það eru einhver tvö lönd þar sem þau eru leyfileg, í Namibíu í Afríku og ég held að þau séu leyfileg í Ísrael en enginn notar þau. Þau eru aldrei í boði fyrir neytendur. En þetta gerum við á hverjum einasta degi. Ekki nóg með það heldur er hreinlega eins og staðan er núna, og ég ætla að koma nánar að því í mínu síðara andsvari, verið að beina neytendum, vegna reglna Seðlabankans, í verðtryggð lán í dag í 7–8% verðbólgu sem stefnir í að fara í tveggja stafa tölu. Þetta er brot gegn neytendum ef eitthvað er það.