152. löggjafarþing — 70. fundur,  27. apr. 2022.

ákvörðun nr. 383/2021 um breytingu á IX. viðauka við EES-samninginn.

411. mál
[17:21]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Já, ég get alveg verið sammála því að sumir af þeim fjármálagerningum sem seldir eru neytendum hér á landi eru alls ekki nægilega gagnsæir. Ég heyrði einu sinni öfuga sögu, ég heyrði af erlendum fjárfesti sem keypti íslensk ríkisskuldabréf; honum fannst vextirnir ágætir á þessu þannig að hann keypti þetta. Svo þegar hann fékk þetta útborgað þá skildi hann aldrei að íslenska ríkið var alltaf að borga 3, 4 eða 5% meira en vextirnir voru. Með öðrum orðum, jafnvel sá fagfjárfestir, þessi erlendi fjárfestir, áttaði sig ekki á því hvað verðtrygging væri. Þetta er hlutur sem er dálítið flóknari en við höldum. Allt frá því að foreldrar mínir byrjuðu að búa hafa verðtryggð lán sennilega verið í notkun og við Íslendingar þekkjum ekki annað, en það er nákvæmlega þetta, það er verið að selja okkur lán með vöxtum sem hækka og lækka og verðbólgan hækkar og lækkar þannig að það er tvöfalt. Og af hverju hækkar verðbólgan? Jú, af því inni í verðbólgunni er húsnæðiskostnaðurinn. Þetta er því svona hringekja sem orsakar það einfaldlega að fólk á minna og minna eða alla vega ekki meira og meira í húsinu sínu eins og það hefði átt að gera. Ég get komið í seinna andsvari að lífeyrissparnaði, t.d. séreignarsparnaði. Það eru stórir gallar á því að við séum upplýst um það hvernig þeir fjármunir eru fjárfestir.